12.7.2010 | 19:23
Einstakt tillitsleysi - Aftur og nýbúin
Hinn 23. júní síđastliđinn birti ég hér á blogginu mynd af rauđri VW Transporter sendiferđabifreiđ, sem lagt hafđi veriđ í stćđi fyrir fatlađa viđ Hagkaup í Skeifunni. . Konan sem ók bifreiđinni var ekki líkamlega fötluđ. Hún var starfsmađur blómaheildsölunnar Samasem og var ađ fara međ blóm inn í Hagkaup.
Í dag varđ ţessi sama kona aftur á vegi mínum Ţá hafđi hún lagt sendiferđabifreiđ í stćđi sérmerkt fötluđum beint fyrir framan Hagkaup í Garđabć og var ađ fara inn í verslunina međ vatnsbrúsa til ađ vökva blóm sem voru á hillum í anddyrinu. Sama konan, sama fyrirtćki, en annar bíll. Bíllin sem konan ók í dag var rćkilega merktur Blómaheildsölunni Samasem.
Ţegar ég benti konunni á ađ hún hefđi lagt í stćđi fatlađra svarađi hún mér heldur illileg á svip međ miklum orđaflaumi, líklega blöndu of pólsku og ensku. Ţađ eina sem ég skildi var: My boss, my boss. Ţađ virtist hinsvegar ekki hvarfla ađ henni ađ fćra bílinn, ţví hún hélt bara áfram inn í Hagkaup.
Ţetta er algjörlega óafsakanlegt framferđi. Fyrirtćkiđ Samasem ćtti ađ skammast sín.
PS Fólkiđ sem sést á myndinni tengist ţessu máli ekkert.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)
12.7.2010 | 11:40
Molar um málfar og miđla 351
Pistlar Sveins Helgasonar eru ćvinlega góđ innlegg í fréttatíma Ríkisútvarps/sjónvarps. Í pistli í dag (09.07.2010) talađi Sveinn um ađ vera á höttunum eftir og bjóđa gull og grćna skóga. Gott mál.
Í Molum um málfar og miđla (348), var minnst á forsetningar međ íslenskum stađaheitum. Í fréttum Ríkissjónvarps (09.07.2010) var sagt á Stykkishólmi. Föst málvenja er ađ segja í Stykkishólmi og er ástćđulaust ađ breyta ţví. Umburđarlyndiđ má ekki ná svo langt í Efstaleitinu ađ menn geti valiđ sér forsetningar ađ vild međ íslenskum stađanöfnum.
Molaskrifara ţykir ţađ einkar ánćgjulegt, ađ eftir birtingu 350 Mola um málfar og miđla skuli málfarsráđunautur Ríkisútvarpsins nú farinn ađ rćskja sig og líka virđast ţessi skrif hafa ýtt viđ ţeim ágćta blađamanni Fréttablađsins Bergsteini Sigurđssyni, sem gerir Molahöfund ađ sérstöku umfjöllunarefni í Bakţönkum sínum í Fréttablađinu 9. júlí.
Svo sem áđur hefur veriđ nefnt telur málfarsráđunautur ţessar athugasemdir mínar bera vott um stađnađan hugsunarhátt og skort á umburđarlyndi. Glađur gengst ég viđ ţví ađ vera haldinn ţessum kvillum, ef ţađ er ţađ sem málfarsráđunautur les úr ţessum skrifum mínum.
Bergsteinn gerir Molahöfund eiginlega ábyrgan fyrir öllu málfari í Ríkisútvarpinu á ţeim árum (1967 til 1978) sem hann starfađi ţar, fyrst um skeiđ sem yfirţýđandi en lengst af sem fréttamađur og fréttaţulur. Nú ţykir Molaskrifara tíra á tíkarskottinu ! Kannski man Molaskrifari svolítiđ lengra aftur í tímann en Bergsteinn, langtum yngri mađur. Á ţessum árum starfađi Ríkisútvarpiđ í tveimur algjörlega ađskildum deildum. Útvarpiđ, hljóđvarpiđ, var ađ Skúlagötu 4 en sjónvarpiđ ađ Laugavegi 176. Ég held ,ađ viđ sem störfuđum undir handarjađri Emils Björnssonar fréttastjóra ţessi ár, - og viđ vorum nokkuđ mörg, - ţurfum ekkert ađ skammast okkar fyrir málfar í fréttum á ţessum árum. Ég geri ţađ ekki og ţykist líka geta talađ fyrir munn minna gömlu vinnufélaga. Á fréttastofu hljóđvarpsins á ţessum árum var einnig lögđ rík áhersla á vandađ málfar undir stjórn Margrétar Indriđadóttur. Seinna tóku viđ Kári Jónasson í útvarpinu og í sjónvarpinu Ingvi Hrafn Jónsson og Bogi Ágústsson. Allir höfđu ţeir metnađ til ađ gera vel, - og gerđu, - í ţessum efnum. Ţularstörfum hjá útvarpinu gegndi líka fólk,sem lét sér annt um tunguna, - Pétur Pétursson, Jóhannes Arason, Jón Múli, Ragnheiđur Ásta og fleiri og fleiri. Iđulega leiđréttu ţau texta og fćrđu málfar til betri vegar.
Molaskrifari fćr alltaf öđru hverju pirringspústra ( ekki viss um ađ ţađ orđ finnist í orđabókum.!) vegna ţessara skrifa sinna. Oftar en ekki eru ţar ađ verki nafnleysingjar, sem brestur kjark til ađ koma fram undir nafni og vega ţví úr launsátri. Viđ ţá segir Molaskrifari ţađ sem góđur vinur kenndi honum forđum, ţegar sá hafđi fengiđ sig fullsaddan af símtölum nafnleysingja um efni sjónvarpsins: Ég tala ekki viđ fólk sem heitir ekki neitt.
Međan ţeir sem ţakka ţessi skrif eru margfalt fleiri en ţeir sem amast viđ ţeim, verđur hér haldiđ áfram enn um sinn.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)