Sigurður Kári svarar engu

  Af hverju  segir Sigurður Kári ekki frá því hverjir  styrktu hann, hverjir  borguðu honum og  hvað þeir borguðu honum mikið. Hvað kostaði hann? Hefur hann eitthvað að fela? Þögn hans er ærandi. Fékk  óbragð í munninn af að horfa og hlusta á hann í ræðustóli Alþingis í dag.
mbl.is Vænd um spillingu og lygar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Molar um málfar og miðla 321

 Lengi morguns (07.06.2010) mátti lesa eftirfarandi fyrirsögn á visir.is : Dauði vegna vímuefnaefnaneyslu óvenju há fyrstu fjóra mánuðina. Sá sem samdi þessa fyrirsögn ætti að leita sér að annarri vinnu. En þeim er ekki alls varnað á visir.is. Seinna var fyrirsögnin leiðrétt: Dánartíðni vegna vímuefnaneyslu óvenju há fyrstu fjóra mánuðina.

Bjarni Sigtryggsson, Molavin, gaukaði  eftirfarandi að Molum (06.06.2010): ,,Smellti mynd af dv.is frétt rétt í þessu, sem sýnir annaðhvort hroðvirkni og að enn lesa menn ekki sjálfir yfir það sem þeir hafa skrifað áður en þeir setja á Netið, - eða kunnáttuleysi í beygingum nafnorða og að nota einfalt i eða tvöfalt (y).

Í upphafi: "...segir flokk sinn ekki stefnt gegn Sjálfstæðisflokknum..."
Í lok: "dæmi um mál, sem enginn skyldi." ". 

Ætli þetta sé ekki svolítið af hvorutveggja, hroðvirkni og kunnáttuleysi. Úr verður vond blanda.

...Íslandsmeistarinn síðasta ár,sagði íþróttafréttamaður Ríkissjónvarpsins (06.06.2010). Hann var að tala um Íslandsmeistarann frá í fyrra. Fjölmiðlamönnum  virðist vera að takast  festa í málinu að tala um síðasta ár, síðasta vor og  síðasta vetur í stað þess að segja í fyrra, í fyrravor og í fyrravetur. Þetta finnst Molaskrifara slæmt.

Fín heimildarmynd um sægarpinn og aflakónginn Binna í Gröf í Ríkissjónvarpinu að kveldi Sjómannadagsins. Ótrúlega mikið af áhugaverðum gömlum kvikmyndum og ljósmyndum. Vel unnið verk í alla staði. Prik fyrir það.

 Stöð tvö verður að vanda betur val þeirra sem segja okkur fréttir. Í stuttri frétt um hátíðahöld á Sjómannadaginn (06.06.2010) sagði sami fréttamaðurinn:   Við hefjum yfirreið okkar yfir  Sjómannadaginn niðri á Granda,..... sem arfleifði kvenfélagið að aleigu sinni..... og  heiðraðir fyrir  störf sín á löngum  sjómannaferli. Þessum starfsmanni ætti að fá   annað starf en að segja okkur fréttir. Til þess hefur hann enga burði. Í það minnsta ætti einhver, sem hefur tilfinningu  fyrir  tungunni, að lesa yfir það sem þessi fréttamaður ætlar að segja okkur, áður en honum er hleypt á skjáinn.


Bloggfærslur 7. júní 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband