25.6.2010 | 11:06
Tímabćrt frumvarp Sivjar
Ţessi tillaga Sivjar er löngu tímabćr. Ţađ er skynsamlegt ađ gera ţessa breytingu. Á sínum tíma rćddi norska Stórţingiđ EES á tveimur eđa ţremur dögum, minnir mig. Ţađ var ákveđiđ áđur en umrćđan hófst. Flokkarnir fengu rćđutíma í samrćmi viđ ţingstyrk. Á Alţingi íslendinga var EES máliđ ţćft vikum saman. Ţar fóru fremstir í flokki Alţýđubandalagsmenn,sem yfirleitt hafa veriđ á móti útlöndum. Ţetta hafđi ekkert međ málfrelsi ađ gera. ţetta var bara ţinginu til skammar.
Gott ef Siv fćr ţađ fram ađ ţessu verđi breytt. Íhaldskurfarnir á ţingi eru ţó vísir til ađ efna til málţófs til ađ koma í veg fyrir ađ ţetta ágćta frumvarp nái fram ađ ganga.
![]() |
Vill útrýma málţófi |
Tilkynna um óviđeigandi tengingu viđ frétt |
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)
25.6.2010 | 08:08
Molar um málfar og miđla 336
Glöggur Molalesandi sendi eftirfarandi úr mbl.is (23.06.2010): Fabio Capello landsliđsţjálfari Englendinga hrósađi leikmönnum sínum fyrir frábćra baráttu og góđum liđsanda ţegar liđiđ lagđi Slóvena 1:0, og tryggđi sér ţar međ sćti í 16-liđa úrslitum á HM." Ţakka sendinguna. Fjólurnar blómstra í Hádegismóum.
Visir.is (23.06.2010): Stjórn RÚV mun svo hittast á ţriđjudaginn og býst Páll viđ ađ ráđningin beri á góma ţar... Hér hefđi átt ađ standa: ... og býst Páll viđ ađ ráđninguna beri á góma ţar. Ráđning á hér ađ vera í ţolfalli. Sjá. t.d. Mergur málsins, dr. Jón G. Friđjónsson , bls. 265.
Úr dv.is (23.06.2010): Í tilkynningu frá Jafnréttisstofu segir ađ stofnuninni hafi á undanförnum dögum borist ábendingar og kvartanir vegna skorts á sýnileika kvenna viđ lýsingar á leikjum á HM í Suđur Afríku. Hann bregst ekki kansellístíllinn hjá stofnunum hins opinbera: Skortur á sýnileika kvenna!
Í hádegisfréttum Bylgjunnar (24.06.2010) sagđi íţróttafréttamađur međal annars: Gerđ verđa skil á Visaleikjunum.... Eitt núll fyrir Englandi.... Vart verđur sagt ađ ţetta sé til fyrirmyndar eđa eftirbreytni.
Í hádegisfréttum RÚV (24.06.2010) talađi fréttaţulur réttilega um fund í Stjórnarráđshúsinu. Fréttamađur talađi hinsvegar um fund í stjórnarráđinu og eins var til orđa tekiđ í sex fréttum RÚV sjónvarps. Stjórnarráđiđ er samheiti yfir öll ráđuneytin. Forsćtisráđuneytiđ er í Stjórnarráđshúsinu viđ Lćkjartorg.
Hér kemur uppskrift ađ kartöflusalati sem er ógurlega gott međ silungi eđa álíka sjávarfangi. Ţađ var og ! Pressan.is, Veröld Mörtu (23.06.2010) Silungur úr sjó er á íslensku nefndur sjóbirtingur. Ekki er talađ um silung sem sjávarfang.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)