Hámark ábyrgðarleysisins

  Það er hámark ábyrgðarleysisins þegar svokölluð Samtök lánþega  hvetja borgarana til að gera áhlaup á  banka og fjármálastofnanir á Íslandi. Það mundi samstundis leiða til algjörs hruns.  Þetta er eins og að kalla eldur, eldur í troðfullum sal, - einhverjir komast út, aðrir troðast undir en flestir farast í eldinum. 

 Eins og  Axel Jóhann Axelsson réttilega bendir á áð blog.is eru það þeir sem hafa fengið spariféð að láni, sem nú hvetja  til áhlaups á alla banka og fjármálastofnanir á Íslandi af því að þeir  vilja ekki borga  jafnverðmiklar krónur til baka. Vilja hagnast á sparifé annarra. Þeir eiga sem sé að njóta sem lánin tóku , en þeir sem spöruðu  eiga að  tapa sínum ævisparnaði í mörgum tilvikum. Þetta er eitt af því ljótasta sem lengi hefur heyrst.


Bloggfærslur 24. júní 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband