21.6.2010 | 09:26
Molar um málfar og miđla 333
Í hádegisfréttum Bylgjunnar (19.06.2010) var sagt frá brúđkaupi sćnsku prinsessunnar Viktoríu og hennar tilvonandi eiginmanns. Í fréttinni var sagt frá hátíđartónleikum međ ţessum orđum: Tónleikunum lauk međ barnakór... Ţetta orđalag er út í hött. Tónleikunum lauk međ söng barnakórs, eđa međ ţví ađ barnakór söng. Sami féttamađur talađi í sömu frétt um ađ ganga í hnapphelduna.Frá hnappheldu ( hafti sem sett er á framfćtur hesta) segir á bls. 363 í Merg málsins eftir dr. Jón G. Friđjónsson. Ţar er talađ um ađ fá á sig hnapphelduna (kvćnast), koma á e-n hnappheldunni, leggja á e-n hnapphelduna og vera kominn í hnapphelduna. Engin dćmi eru ţar um ađ ganga í hnapphelduna eins og fréttamađur sagđi. Ţetta orđalag virđist vera seinni tíma tilbúningur fjölmiđlunga. Fréttamenn ćttu ađ hafa Merg málsins innan seilingar, ţegar ţeir skrifa fréttir.
Marglesin var í Ríkisútvarpinu (19.06.2010) tilkynning,sem hófst svona. Yfirlitssýning Hafsteins Austmanns í Gerđarsafni lýkur.... Sýning lýkur ekki. Sýningu lýkur.
Stöku sinnum er hćgt ađ hlusta á ţćtti í Útvarpi Sögu. Molaskrifari hlustađi sér til ánćgju á viđtal viđ Egil Ólafsson (líklegt fyrst á dagskrá 16.06.2010) um skipulagsmál í Reykjavík. Egill vakti athygli á ţeim mörgu skemmdarverkum,sem unnin hafa veriđ, - til dćmis međ niđurbroti sögufrćgra húsa viđ Skúlagötu, húsa sem mörkuđu spor í atvinnusögu ţjóđarinnar. Í stađ ţeirra voru reistir forljótir steyputurnar, sem sumir ađ auki reyndust illa byggđir. Egill benti réttilega á ţá firru ađ reisa háhýsi á lćgstu blettum borgarinnar. Ţau ćttu ađ gnćfa á hćđum ţar sem ţau skyggđu ekki á útsýni neins. Molaskrifari hafđi lúmskt gaman af ţví hve oft spyrill bar upp lokaspurningu í ţessu ágćta viđtali.
Viđ ađ hlýđa á Egil Ólafsson og athyglisverđ sjónarmiđ hans varđ Molaskrifara hugsađ til Rauđarárstígsins, en frá Háteigsvegi ađ Hlemmi hefur hin gamla austurhliđ götunnar veriđ lögđ í rúst og ţar reistir forljótir, karakterlausir steinkumbaldar. Norđurmýrin, reiturinn sem afmarkast af Miklubraut, Snorrabraut, Njálsgötu og Rauđarárstíg er enn heillegt hverfi,sem ekki hefur veriđ skemmt. Ţar eru húsin byggđ líklega frá 1937 til 1941 eđa ţar um bil. Vonandi verđa ekki unnin skemmdarverk ţar. Enda er sá siđur víst úr sögunni,sem lengi hefur veriđ viđ lýđi ađ verktakar geti keypt sér borgarfulltrúa til ađ skaffa sér sér lóđir.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)