15.6.2010 | 09:37
Molar um málfar og miđla 328
Hennar hugur virđist hins vegar enn vera hjá Reykjavíkurborg og ţví myndi hún ekki gefa kost á sér.(mbl.is.13.06.2010). ţessi setning er ekki í lagi. Veriđ var ađ fjalla um hvort Hanna Birna ,senn fyrrverandi borgarstjóri, mundi gefa kost á sér í embćtti varaformanns Sjálfstćđisflokksins á landsfundinum undir lok ţessa mánađar. Fyrri hluti setningarinnar er getgáta blađamanns, en seinni hlutinn er eins og hafđur eftir Hönnu Birnu í óbeinni rćđu. Ţarna hefđi annađhvort átt ađ standa: Hugur hennar vćri enn hjá Reykjavíkurborg og ţví myndi hún ekki gefa kost á sér. Eđa:Hugur hennar er enn hjá Reykjavíkurborg og ţví gefur hún ekki kost á sér.
Síđar í ţessari sömu frétt á mbl.is segir um áform Hönnu Birnu: ...hyggst ekki gefa kost á sér í varaformann Sjálfstćđisflokksins á nćstkomandi landsfundi. Gefa kost á sér í varaformann ! Af hverju á nćstkomandi landsfundii ? Svona orđalag er Morgunblađiđnu ekki sambođiđ.
Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (13.06.2010) var sagt frá lóninu í gíg Eyjafjallajökuls Sagt var, ađ vatniđ ćtti eftir tuttugu til ţrjátíu metra ađ barmbrún gígsins. Hér hefđi veriđ réttara ađ segja ađ vatniđ ćtti eftir tuttugu til ţrjátíu metra ađ gígbarminum. Barmur er nefnilega brún eđa jađar.
Úr dv.is (13.06.2010): Hinn tvítugi Xu, var ađ hella steypu ofan í hrćrivélina ţegar steypupokinn festist í spađa í vélinni, og dró hann ofan í vélina. Skilur einhver ţetta ? Hella stepu úr poka ofan í hrćrivél ???
Í hádegisfréttum Bylgjunnar (13.06.2010) var frétt um blóđug átök ţjóđernishópa í Kirgistan. Talađ var ađ veitt hefđi veriđ leyfi til ađ drepa, og talađ um uppţot,sem tekiđ hefđi áttatíu líf. Ţarna var hver ambagan eftir ađra. Frétt um sama efni var langtum betur orđuđ í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins sama dag. Ţar var til dćmis talađ um ađ heimilađ hefđi veriđ ađ skjóta fólk til bana en ekki ađ gefđi hefđi veriđ leyfi til ađ drepa.
Frétt Morgunblađsins af ţessum sömu atburđum er svo sannarlega ekki til ađ hrópa húrra fyrir. Ţar segir međal annars: Ađ svo stöddu hefur mestöll borgin veriđ lögđ í rúst.Múgurinn hefur stoliđ mestöllum mat sem í borginni var ađ finna og sigri hrósandi fylkingar kirgskra karlmanna tóku viđ stjórn borgarinnar í dag á međan 250.000 Úsbekar sem eftir eru í borginni hafa byrgt sig inni í hverfum sínum.Ţá virđist her og lögregla vera í vörn um allt suđur landsins og óvíst er um framtíđ stjórnvalda en Rússar hafa neitađ ađ grípa inn í átökin. Lesendur dćmi. Ţađ er ekki bara ađ ein og ein fjóla spretti á málakri Mogga. Ţar dafna nú heilu fjólubreiđurnar.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)