Molar um málfar og miđla 317

 Fréttaţulur Stöđvar tvö las óhikađ (31.05.2010) Landsmót hestamanna,.... hefur veriđ aflýst. Hér átti auđvitađ ađ segja  ađ Landsmóti hestamanna hefđi veriđ af lýst. En ţetta var ekki eina beygingarvillan í ţessum fréttatíma Stöđvar tvö. Ţar var líka sagt: .. um er ađ rćđa .. ( ţrjá seđlabankastjóra) ..auk Jónas Fr. Jónsson.  Hér hefđi  átt ađ segja:.. auk Jónasar Fr. Jónssonar.  Á ţessum bć ráđa menn illa viđ réttar beygingar móđurmálsins.

Lögreglufrétt ársins er í Fréttablađinu (31.05.2010). Hún er svona:  Enginn slasađist í minniháttar líkamsárás sem átti sér stađ í Keflavík  ađfaranótt sunnudags. Ađ sögn lögreglunnar á Suđurnesjum var árásin stöđvuđ í fćđingu.   Ţađ var og !

Úr mbl.is (31.05.2010): Einnig hefur boriđ á ţví ađ veski kvenfólks á skemmtistöđum í miđborginni hefur veriđ stoliđ ađ kvöld og nćturlagi...  Ekki alveg skýr hugsunin í ţessu.

Meira úr mbl.is (31.05.2010): ....Magnús Scheving hafi ţurft ađ afsala sér höfundaréttinum af sköpun sinni gegn 40% hlut í félaginu. Viđ ţetta setningarbrot má gera tvćr athugasemdir. Talađ er um höfundarrétt, ekki höfundarétt og um höfundarrétt einhverju en ekki af einhverju. Upphaflega  stóđ ţarna:  .. gegn 40% hluts í félaginu,en ţađ var leiđrétt.  Ennţá meira úr mbl.is : Um eitt leytiđ missti ung stúlka stjórn á bíl sínum í lausamöl í Miđdal og fór bílveltu. Stúlkuna sakađi ekki. Klukkustund síđar missti ökumađur lítillar vinnuvélar stjórn ávélinni á Gjábakkavegi og fór bílveltu.Má spyrja?  Hvađ er ađ fara bílveltu ?  Viđvaningum er greinilega treyst til ađ skrifa  fyrir okkur fréttir á mbl.is

 

Nú eru innlendar fréttir úr  fréttum  RÚV  útvarps, endurfluttar međ mynd í sjö fréttum RÚV  sjónvarps ( 31.05.2010)

Regniđ sem fylgt hefur storminum hefur valdiđ ţví ađ á annan tug flóđa hefur flćtt yfir bakka sína í landinu.  Hér hefur eitthvađ fariđ úrskeiđis hjá ţeim sem skrifađi ţessa frétt í mbl.is (30.05.2010)


Bloggfćrslur 1. júní 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband