Molar um málfar og miđla 298

 Ţađ var ýmislegt athyglisvert viđ fréttatíma   sjónvarpsstöđvanna ţriđjudagskvöldiđ 4. maí. Í fréttum Stöđvar  tvö var viđtal  viđ forstjóra  Vinnumálastofnunar sem taldi atvinnuleysi fara minnkandi og bjartari horfur framundan.  Fyrsta  frétt   Ríkissjónvarpsins um atvinnumálin  var  í allt ađra átt: Ástandiđ aldrei  verra. Ţetta var sérkennilegt.  Ţađ var einnig athyglisvert ađ Ríkissjónvarpinu  ţótti   fyrirlestur  sem William K. Black lögfrćđingur  hélt  fyrir  fullum sal í Háskólanum ekki fréttaefni. Í Kastljósi  viđ tímabćrt viđtal  viđ  ţingmann sem  fengiđ hefur  hćrri styrki en ađrir í prófkjörsbaráttu. Er eiginlega styrkjakóngur. Helgi Seljan sótti fast í spurningum og var vel undirbúinn. Svo var fjallađ um frímerkjasöfnun og  mengunarslys í Mexíkóflóa.

Viđtal Ríkissjónvarps  viđ Seđlabankastjóra í  Kastljósi (03.05.2010)  Var skólabókardćmi um afspyrnu vont  viđtal. Seđlabankastjóri   svarađi  ţví sem um var spurt á tveimur  mínútum eđa  svo, en fréttamađurinn ţvćldi og ţvćldi og virtist annađhvort ekki heyra eđa skilja  svörin. .  Bankastjórinn endurtök  svar sitt ađ minnsta  tvisvar sinnum,ef ekki oftar.  Ţetta varđ óskiljanlegt rugl.

 Sjónvarpsfréttamenn  ćttu ađ  reyna ađ venja sig  af ţví ađ bađa út öllum öngum ţegar ţeir  koma í mynd á vettvangi. Ţađ er ósköp hallćrislegt.

Úr mbl.is, (27.04.2010):  Mađur sem drakk stíflueyđi í Húsasmiđjunni í gćr er haldiđ sofandi og tengdur viđ öndunarvél á gjörgćsludeild Landspítalans í Fossvogsdal. - Manni sem drakk stíflueyđi er haldiđ sofandi...   ćtti ţetta ađ vera.

 Í undirfyrirsögn í DV sagđi: Tíminn er naumur ţví olíumagniđ sem streymir út í hafiđ er ţrisvar sinnum meria  en vonast var.  Ţađ er út í hött ađ  nota í ţessu  sambandi orđsambandiđ  vonast var . Hér hefđi átt ađ segja  ... ţrisvar sinnum meira en óttast var.

 

 


Bloggfćrslur 4. maí 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband