Molar um málfar og miđla 287

 Í tvígang hefur Hannes ţó ekki tekiđ ţátt á mótinu, sagđi íţróttafréttamađur RÚV í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins (10.04.2010). Ekki í fyrsta skipi, sem íţróttafréttamenn taka  svo til orđa. Menn  taka ekki ţátt á móti  heldur í móti. Menn geta  hinsvegar  keppt á móti. Málfarsráđunautur Ríkisútvarpsiins  ţarf ađ skýra ţetta út fyrir íţróttafréttamönnum.

Fólk vill sjá íslensk bönd, segir í fyrirsögn á mbl.is (09.04.2010). Íslensk bönd eru ekki snćri. Ţetta ţýđir víst, ađ   fólk vilji hlusta á  íslenskar hljómsveitir.

Vitnađ var DV í morgunţćtti Rásar eitt (09.04.2010) en ţar var sagt frá hinu dularfulla átöppunarveri,sem sagt er ađ rísa muni á Snćfellsnes. Svo var  til orđa  tekiđ ađ heimasíđa fyrirtćkisins lćgi niđri, í ţeirri merkingu, ađ heimasíđan vćri ekki ađgengileg, lokuđ  eđa óvirk. Hjá  fjölmiđlamönnum liggur margt niđri umferđarljós geta legiđ niđri, símkerfi geta  legiđ  niđri og sjálfsagt fleira.  Prýđilegt  vćri,  ef umsjónarmađur  morgunţáttarins og  Ađalsteinn  Davíđsson fyrrum málfarsráđunautur RÚV  nefndu ţessa ambögu í spjalli sínu um íslenskt mál  nćsta föstudag.

Ţađ ţarf ađ huga vel ađ beygingum, ţegar  skrifađ er. Í fréttum Ríkissjónvarpsins (08.04.2010) var sagt: ađ eftirlit međ fjármálastofnunum hafi veriđ  ábótavant.  Einhverju er ábótavant, ekki eitthvađ. Ţess vegna  átti ađ segja: ...ađ eftirliti međ fjármálastofnunum hafi veriđ ábótavant.

 Svo er spurt í lokin: Hvađa tengsl sér  Fréttastofa ríkisins milli hvalreka á Suđurlandi og eldgoss á Fimmvörđuhálsi ?   Ţetta var tengt saman međ  býsna sérkennilegum hćtti í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins (10.04.2010)


Bloggfćrslur 11. apríl 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband