Molar um málfar og miđla 269

 Bjartsýnn var Molaskrifari á ađ  fréttamönnum tćkist ađ tala rétt um  ţađ hvenćr kjörstađir vćru opnar og hvenćr ţeim  vćri lokađ í ţjóđaratkvćđagreiđslunni  a laugardaginn var. Bjartsýnn ţar til hann hann heyrđi ţrautreyndan fréttamann á Stöđ tvö segja (06.03.2010): Kjörstöđum lokar klukkan tíu í kvöld.   Kjörstöđum lokar ekki,   kjörstöđum var lokađ klukka  tíu um kvöldiđ.

Útsvarsstjarna sigrar prófkjör,segir í fyrirsögn á pressan.is  (06.032.10). Menn sigra ekki prófkjör, menn  sigra í prófkjöri. Menn sigra ekki keppni. Menn sigra í leik.  Sá sem ţetta hefur  skrifađ, er ekki slyngur í réttri notkun móđurmálsins.

Í fréttum Stöđvar tvö var nýlega   talađ um ađ bera hitann og ţungann í málinu. Ţetta er ekki rétt notkun ţessa orđtaks. Talađ er um ađ einhver beri hitann og ţungann af einhverju, ţegar  sá sem um  er rćtt, er sá sem mest mćđir á.

Jónas Kristjánsson, jonas.is ,  tvískrifar  orđiđ  ţátttaka međ  t- um í bloggi sínu (06.03.2010). Pennaglöp. Jónas veit auđvitađ betur.

 Í RÚV (06.03.2010) ,líklega í Gettu betur, var talađ um útgerđarbónda.  Betra or  vćri , -  útvegsbóndi. Gamalt og  gott orđ. Guđmundur Jónsson á Rafnkelsstöđum í Garđi minn fyrsti vinnuveitandi, er ég var sjö ára, var útvegsbóndi. Hafđi kýr í fjósi , báta á sjó og saltfisk á stakkstćđi, eđa reit.  

  Viđ erum međ verulegan sneisafullan pakka í dag, sagđi íţróttafréttamađur RÚV (06.03.2010) Ţetta er á margan hátt óćskilegt orđalag.  „Pakkinn", sem hann talar um er líklega íţróttafréttatíminn. hann getur auđvitađ veriđ sneisafullur, en aldrei   verulega sneisafulllur !

 Í spurningaţćtti RÚV sjónvarps (06.03.2010) var  birt mynd af höggmynd Einars  Jónssonar og sagt ađ hún héti Útlagar. Molaskrifari hefur alltaf stađiđ í ţeirri trú, ađ myndin héti Útlaginn. En rétt er ţađ hjá RÚV ađ myndin heitir Útlagar. Eins gott  ađ vera ekki of fljótur á sér.

Ţegar  brotsjóir  riđu yfir farţegaskip á  Miđjarđarhafi  og tveir farţegar biđu bana var sagt á í einhverjum miđlinum, ađ  manntjón hefđi orđiđ í öldugangi ! Klaufalega orđađ.


Bloggfćrslur 11. mars 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband