27.2.2010 | 22:54
Hannes með böggum hildar
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, æðsti prestur frjálshyggjunnar, eða æsti prestur frjálshyggjunnar,eins og einhver sagði, getur nú ekki á sér heilum tekið vegna nýs ritstjóra Fréttablaðsins. Hannes fer og mun fara hamförum gegn Ólafi Stephensen. Ólafur er fagmaður og fínn blaðamaður. Skoðanir hans voru hinsvegar ekki að skapi kvótaeigenda Morgunblaðsins. Þessvegna var hann rekinn,. Hannes skrifar digurbarkalega á blogginu, en leyfir engum að gera athugasemdir. Hvað var þessi hirð í kringum hann annars kölluð? Man það nokkur?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)