25.2.2010 | 12:30
Háhyrningar eru ekki gáfuð gæludýr
Því var á sínum tíma haldið fram á svokölluðum Hvalavef RÚV ,sem ætlaður er börnum, að háhyrningar væru gáfuð gæludýr, sem gerðu ekki mönnum mein. Það kostaði nokkrar blaðagreinar og tilvitnanir í skráð tilvik um árásir háhyrninga á fólk að fá þetta leiðrétt. Konurnar sem sáu um vefinn þrjóskuðust lengi við. Leiðrétting fékkst að lokum eftir að Markúsi Erni útvarpsstjóra hafði verið kynnt málið. Háhyrningar eru grimmustu dýr sem hafdjúpin hýsa. Það er ekki að ástæðulausu, að þeir eru kallaðir „killer whales" ,drápshvalir,á ensku. Séð hef ég myndir af háhyrningahópi, sem kastar lifandi kópi á milli sín áður en þeir tæta hann í sig.
![]() |
Háhyrningur í Orlando drap konu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)