27.11.2010 | 15:42
Molar um málfar og miđla 472
Eftirfarandi setningarbrot úr dv.is (26.11.2010) er lýsandi dćmi um skort á máltilfinningu: Kostnađurinn nemur um tvćr milljónir króna ... Hér ćtti ađ standa: Kostnađurinn nemur um tveimur milljónum króna.
Annađ dćmi um skort á máltilfinningu úr hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (26.11.2010): Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum vegna álvers viđ Bakka á Húsavík var skilađ í gćr.... Mat var ekki skilađ, heldur var mati skilađ. Er ţađ í rauninni svo ađ ţađ les enginn yfir ţađ sem álfarnir skrifa áđur en ţví er hellt yfir okkur hlustendur ?
Ţađ ćtti ađ vera vinnuregla í Ríkisútvarpinu ađ segja ţannig frá ártölum, ađ allt ártaliđ sé nefnt , ekki bara tveir síđustu tölustafirnir. Í útvarpsţćtti (26.11.2010) var talađ um smáskífu, sem komiđ hefđi út áriđ sjötíu og sex ! Glöggir hlustendur hafa ţó líklega áttađ sig á ţví ,ađ hljómplötuútgáfa var ekki hafin áriđ sjötíu og sex og ekki einu sinni átjánhundruđ sjötíu og sex. Ríkisútvarpiđ á ađ forđast svona latmćli.
Lýsingarorđiđ vinsćll stigbreytist, vinsćll, vinsćlli, vinsćlastur. Miđstigiđ er ekki vinsćlari eins og ţáttastjórnandi í Útvarpi Sögu sagđi (26.11.2010)
Ţađ er bara ţađ sem ţeir kalla discrimination, sagđi stjórnarformađur Útvarps Sögu (26.11.2010). Er ţađ ekki rétt munađ ađ útvarpsstjóri ţessarar stöđvar hellti sér yfir konu,sem vildi fá ađ tala ensku, er hún hringdi til stöđvarinnar ? Orđiđ discrimination er nefnilega enska. Útvarpsstjórinn ćtti ađ byrja á ţví ađ tala viđ stjórnarformann sinn. Hćg eru heimatökin. Ţađ er góđ regla ađ byrja tiltektina heima hjá sér.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)