26.11.2010 | 13:34
Molar um málfar og miđla 471
Kjörstađir opna klukkan tíu, sagđi fréttamađur Ríkisútvarpsins í hádegisfréttum (26.11.2010). Er mönnum alveg fyrirmunađ ađ nota sögnina ađ opna rétt ? Kjörstađir opna hvorki eitt né neitt. Kjörstađir verđa opnađir klukkan tíu. Ótrúlegt. Hvađ segir málfarsráđunautur? Er hann ekki örugglega enn viđ störf?
Var leitađ til íslenskra dómara međ ađstođ, sagđi íţróttafréttamađur Ríkisútvarpsins í sexfréttum (25.11.2010) Hér hefđi fréttamađur átt ađ segja ađ leitađ hefđi veriđ til íslenskra dómara um ađstođ.
Líklega var Molaskrifari ekki einn um ađ verđa hissa á ađ heyra ráđherra lýsa vonbrigđum međ ađ Hćstiréttur skuli hafa metiđ meira bókstafsskilning á eignarréttarvernd kröfuhafa heldur en vernd einkalífs og heimilis eignalauss fólks". Á ekki Hćstiréttur ađ dćma eftir bókstaf laganna ? Ef bókstafur laganna er rangur ađ mati ráđherra og ţingmanna eiga ţeir ađ breyta lögunum ,en ekki skamma Hćstarétt.
Einfaldar lausnir viđ erfiđum vandamálum var sagt í sjónvarpsauglýsingu (25.11.2010) í Ríkissjónvarpinu. Molaskrifari hallast ađ ţví ađ rétt sé ađ tala um lausnir á vandamálum, ekki viđ vandamálum.
Af mbl.is (266.11.2010): Lögregla á eftirliti veitti ferđum ţeirra athygli ... Hér hefđi veriđ betra ađ segja: Lögreglumenn í eftirlitsferđ veittu ferđum ţeirra athygli, - veriđ var ađ segja frá innbrotum í sumarhús í Grímsnesi.
Ţađ var hárrétt, sem Eiríkur Tómasson prófessor sagđi í Ríkissjónvarpinu í k völd: Íslensk stjórnmál eru frumstćđ. Viđ sáum ţetta rćkilega í fréttatímum beggja sjónvarpsstöđvanna í kvöld (18.11.2010)
Merkilegt fréttamat hjá Ríkissjónvarpinu okkar, ađ frétt um ađ Svarthöfđabúningur úr kvikmynd hafi ekki selst á uppbođi í Lundúnum, skuli hafa ratađ inn í ađalfréttatíma kvöldsins. Ţetta var einhver mesta ekki frétt", sem Molaskrifari hefur lengi séđ. Ekki margt fagmannlegt viđ svona fréttamat. Ţá má auđvitađ líka um ţađ deila hvađa erindi óléttufréttir eiga í fréttatíma Ríkisútvarpsins. Katrínu Jakobsdóttur er hinsvegar óskađ til hamingju međ ađ eiga von á sínu ţriđja barni.
Glöggur lesandi sendi eftirfarandi athugasemd (25.11.2010): Verđ ađ vekja athygli á ţessari setningu úr bloggi Ţorbjargar Marínósdóttur (Tobbu) á DV.is:Ţessir ungu strákar uldu miklum usla á Akureyri á síđasta ári međ skemmdaverkum sinum.Oft hefur mađur séđ sögnina ađ valda vefjast fyrir fólki, en ţetta held ég ađ toppi allt saman." Ţetta er eiginlega alveg sérstakt afrek !
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)