17.11.2010 | 08:50
Molar um málfar og miđla 462
Ţađ var ađ verđleikum ađ Vigdís Finnbogadóttir skyldi hljóta Verđlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu. Innilega til hamingju, Vigdís.
Í morgunútvarpi beggja rása Ríkisútvarpsins er sagt frá helstu fyrirsögnun dagblađanna. Umsjónarmenn Rásar tvö sáu enga ástćđu til ađ segja frá verđlaununum ,sem Vigdísi voru veitt(17.11.2010). Líklega utan ţeirra áhugasviđs.
Í fréttum Stöđvar tvö (14.11.2010) var sagt ađ tilteknar reglur um bankaviđskipti hefđu ekki veriđ réttilega birtar ţangađ til í október. Ţarna átti fréttamađur auđvitađ ađ segja, ... fyrr en í október. Í sama fréttatíma talađi fréttamađur (sá sami?) um bréf frá Kaupţing. Láđist ađ beygja heiti bankans, ...bréf frá Kaupţingi. Og í ţriđja sinn skal vitnađ í sama fréttatíma, en ţá talađi fréttamađur um sökudólga sjúkdóma, er hann var ađ tala um orsakir sjúkdóma. Ógott mál.
Ýmislegt fróđlegt var í Landanum (14.11.2010), ekki síst umfjöllun um rófurćkt og orku sjávarfalla. Óţarft var ţó ađ kalla Hallormsstađ Hallormsstađi. Eins og hér hefur veriđ margsinnis sagt sér ţess oft stađ í fréttum, ađ landafrćđinni var úthýst úr námsefni grunnskóla. Kvikmynd Jóns Karls Helgasonar um Álfahöllina viđ Hverfisgötu var prýđileg.
Stundum er íţróttafréttamönnum heldur ósýnt um ađ tala mannamál. Íţróttafréttamađur Ríkissjónvarpsins sagđi okkur (14.11.2010) ađ nafngreindur knattspyrnumađur hefđi klippt boltann glćsilega í netiđ. Allir sáu ađ mađurinn skorađi mark, en líklega ekki allir ađ hann hefđi klippt boltann í netiđ.
Dagskrárstjórar norrćnu sjónvarpsstöđvanna vita ađ til er sígild tónlist. Ţeir bjóđa áhorfendum vikulega á tónleika ţar sem frábćrt efni í flutningi heimskunnra listamanna er á bođstólum. Ţeir starfsmenn í Efstaleitinu,sem rađa saman dagskrá Ríkissjónvarpsins virđast ekki vita af sígildri tónlist. Ţar breytir engu ţótt heimildamynd um Mendelsohn hafi slćđst inn í dagskrána á dögunum. Sígild tónlist á ekki upp á pallborđiđ í Efstaleitinu.
Enn er sá ósiđur viđ lýđi í símaţáttum Útvarps Sögu, ađ ţeir sem hringja úthúđa nafngreindu fólki og níđa ţađ međ gífuryrđum, en ţáttastjórar hreyfa engum andmćlum, ţegar óţverranum er ausiđ yfir hlustendur.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:16 | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)