14.11.2010 | 09:05
Molar um málfar og miðla 459
Útsvar Ríkissjónvarpsins stendur jafnan fyrir sínu. Það er sá þáttur,sem Molaskrifari síst vill missa af. Spurningaþættir virkja áhorfendur til þátttöku, til að hugsa. Sigmar og Þóra gera þetta svo vel , að aðrir mundu þar ekki betur gera. Kastljósið er hinsvegar að koðna niður í heldur ómerkilegan auglýsingaþátt (Bók Jónínu Benediktsdóttur,tónleikar og plötuútgáfa Sálarinnar hans Jóns míns, kvikmyndin um Jón Gnarr). Jónínu þátturinn var einstaklega ógeðfelldur. Hún þurfti ekki að tíunda elskhuga sína ( sem svo voru kallaðir) fyrir alþjóð. Var verið að reyna að skapa sem mest tilfinningalegt tjón hjá saklausu fólki ? Þetta fannst Molaskrifara illa gert.
Úr mbl.is (12.11.2010): Persónuvernd telur, að svonefndur svikahnappur á vef Vátryggingafélags Íslands (VÍS) ekki samræmast reglum. Hér hefði átt að standa: Persónuvernd telur að svonefndur svikahnappur á vef Vátryggingafélags Íslands (VÍS) samræmist ekki gildandi reglum. Eða: Persónuvernd telur svonefndan svikahnapp ekki í samræmi við gildandi reglur.
Í Ríkissjónvarpinu (12.11.2010) sagði fréttamaður á Akureyri: Neyð fólks hefur verið mikil í Reykjavík. Vissulega eiga margir í höfuðborginni í erfiðleikum með að láta naumar tekjur eða bætur duga fyrir nauðþurftum. Ekki skal gert lítið úr því. Molaskrifara fannst fréttamaður hinsvegar taka ansi stórt upp í sig, þegar hann tók svona til orða.
Úr mbl.is (12.11.2010): Farþegaflugvél frá bandaríska flugfélaginu United Airlines, á leið frá Lundúnum til San Francisco, þurfti að lenda á Keflavíkurflugvelli nú undir kvöld með veikan sjúkling. Molaskrifari hefur aldrei heyrt um sjúkling sem ekki var veikur og vart er það fréttnæmt,að sjúklingur skuli vera veikur.
Í morgunþætti á Rás tvö (13.11.2010) var fólk beðið að nefna kostulega sjónvarpsþætti. Fjórum eða fimm sinnum heyrði Molaskrifari umsjónarmann tala um: eitthvað sem kemur upp í hugann á þér. Molaskrifari er kannski úr hófi sérvitur, en hann kann því ekki vel að heyra talað um hugann á þér. Betra hefði verið að segja: ... eitthvað sem þér kemur í hug, eitthvað sem þér dettur í hug, eitthvað sem kemur í hugann, -- ekki hugann á þér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)