12.11.2010 | 08:40
Molar um málfar og miđla 457
Kastljós Ríkissjónvarpsins fór niđur í flórinn í viđtalinu viđ Jónínu Benediktsdóttur (11.11.2010) Gaf henni margra milljóna króna ókeypis auglýsingu kvöldiđ áđur en bók hennar kemur út. Hvađ kemur ţjóđinni karlafar ţessarar konu viđ? Ekki baun. Ţađ setti ađ manni ógleđi í tvennum skilningi viđ ađ horfa á Ríkissjónvarpiđ leggjast svona lágt.
Í tíufréttum Ríkissjónvarps (10.11.2010) var talađ um ađ leikskólastjórnendur vćru áhyggjufullir fyrir... Betra hefđi veriđ ađ segja: ... áhyggjufullir vegna ...
Hér var stundum hnýtt í einstaklega hallćrislegar auglýsingar ferđaskrifstofunnar Iceland Express. Fyrirtćkiđ hefur nú söđlađ um. Auglýsingar ţess nú um stundir eru hróss verđar, en keimlíkar eru ţćr auglýsingum Tals.
Til hamingju Borgarleikhúsiđ, segir í fyrirsögn á heilsíđu auglýsingu frá VÍS í Morgunblađinu (11.11.2010) Ţetta hljómar ekki vel í eyrum Molaskrifara. Betra hefđi veriđ: Til hamingju Borgarleikhús.
Á tímum niđurskurđar gćti Ríkissjónvarpiđ sparađ verulegar fjárhćđir međ ţví ađ fella niđur tíuféttir. Ţćr bćta yfirleitt litlu sem engu viđ ţađ sem sagt var í fréttum klukkan sjö. Kannski er einni nýrri afgangsfrétt úr sjöfréttatíma skotiđ fremst. Svo mćtti endursýna sjöfréttir í lok dagskrár,ef vill. Svo er líka hćgt ađ reka fleiri reynda fréttamenn.
Stundum rambar Ríkissjónvarpiđ á fréttir af fólki,sem gerir góđa hluti. Ţannig var fréttin (10.11.2010) um frćnda minn í fimmta liđ, Guđna bónda á Ţverlćk, sem safnar drykkjarumbúđum viđ ţjóđvegi Suđurlands og gefur afraksturinn til menningarmála. Afi Molaskrifara, Jón Guđmundsson (d.1932) bjó um skeiđ á Ţverlćk í Holtum.
Hann bregst ekki samhljómurinn milli formanns Framsóknarflokksins og talsmanns svokallađra Hagsmunasamtaka heimilanna, enda var ljóst í upphafi ađ samtökin höfđu flokksleg tengsl. Ekki er vitađ til ađ neinn fréttamađur hafi sinnt ţeirri faglegu skyldu ađ kanna ţessi samtök. Hve margir eru félagar ? Hvenćr var kosiđ í stjórn og svo framvegis. Miđlarnir gleypa allt hrátt,sem frá samtökunum kemur.
Ţađ var ánćgjuleg tilbreyting ađ sjá heimildarmynd um tónskáldiđ Felix Mendelsohn í Ríkissjónvarpinu (10.11.2010). Ţađ eru ár og dagar síđan ţar hefur veriđ flutt efni sem tengist sígildri tónlist. Molaskrifari leyfir sér ađ benda Ríkissjónvarpinu á frábćran hálftíma ţátt úr SVT 2 á mánudagskvöld međ dönsku kammersveitinni og Hovedscenen úr NRK 2 á sunnudagskvöld međ kínverska píanósnillingnum Lang Lang. Ríkissjónvarpiđ hlýtur ađ geta nálgast ţetta efni í Nordvision samstarfinu. Ţetta er svona vinsamleg ábending.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)