7.10.2010 | 08:57
Molar um málfar og miđla 425
Lániđ fellur á gjalddaga , sagđi íţróttafréttamađur Stöđvar tvö (06.10.2010). Lán falla ekki á gjalddaga, heldur falla lán í gjalddaga, ef ţau eru ekki greidd á réttum tíma. Eindagi er gjalddagi, síđasti dagur sem unnt er ađ greiđa skuld án ţess ađ á hana falli dráttarvextir eđa annar kostnađur.
Vinsamleg ábending til Kastljóss: Umrćđur um stefnurćđu forsćtisráđherra eru ekki eldhúsdagsumrćđur. Eldhúsdagsumrćđur fara fram í ţinglok. Ţetta er málvenja, sem engin ástćđa er til ađ breyta.
Ekki hvarflađi ţađ ađ umsjónarmanni Kastljóss Ríkissjónvarpsins (05.10.2010) ađ spyrja ţá mótmćlendur á Austurvelli, sem vildu ađ landiđ fengi svokallađa neyđarstjórn eđa utanţingsstjórn hver ćtti ađ skipa slíka stjórn, eđa hvernig slík stjórn ćtti ađ starfa í sátt viđ ţingiđ. Né heldur datt umsjónarmanni í hug ađ spyrja ţá sem kröfđust ţess ađ hreinsađ vćri út úr ţinghúsinu hverjir ćttu ađ taka viđ. Heldur dapurleg vinnubrögđ.
Umfjöllun um atburđina á Austurvelli var betri í fréttum Stöđvar tvö og í Íslandi í dag en raun bar vitni í Ríkismiđlinum (05.10.2010). Ţar kom vel fram hverskonar skrílslćti ţeir höfđu í frammi sem mest bar á ţetta kvöld. Málefnalegast og skynsamlegast var ţó framlag Ölmu Jennyar Guđmundsdóttur í ţćtti Ţórhalls Gunnarssonar Í návígi í Ríkissjónvarpinu (05.10.2010). Fínn ţáttur.
Orđ Kolbrúnar Bergţórsdóttur um skrílslćti á Austurvelli í Morgunblađinu ((07.10.2010) eru í tíma töluđ. Fjölmiđlar ţora ekki ađ nefna hlutina réttum nöfnum. Ţađ er ámćlisverđur heigulsháttur. Hér hefur veriđ leitast viđ ađ tala skýrt um ţessi mál. Viđ sáum skrílslćti í sjónmvarpinu, en viđ sáum líka fullt af fólki sem fór međ friđi.
Athyglisvert er er hvernig sömu lögmönnunum tekst aftur og aftur ađ plata fréttamenn og komast í sjónvarpsfréttir međ ekki-fréttir", sbr. fréttina um regnhlífina (05.10.2010). Fréttastofur verđa ađ gćta ţess ađ láta óprúttna lögmenn ekki ljúga sig inn í fréttatímana.
Valdfíkinn mađur,sem forseti Íslands er, ţá ţarf engum ađ koma á óvart frétt DV (06.10.2010) um ađ hann skuli ţegar byrjađur ađ ţreifa fyrir sér um skipun utanţingsstjórnar.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)