4.10.2010 | 09:06
Molar um málfar og miđla 422
Ţiđ eruđ opnir til klukkan hvađ? Svona spurđi ţáttastjórnandi í Útvarpi Sögu (02.10.2010). Ansi eru ţeir margir,sem ekki ráđa viđ sögnina ađ opna. Ţessi ţáttastjórnandi er illa haldinn af ţágufallssýki, slettir ensku í tíma og ótíma (myndin á ađ vera svona memo!).Mesti bögubósi. Annars er makalaust ađ hlusta á útvarpsţátt ţar sem átölulaust er hvatt til líkamsmeiđinga. En fróđlegt var ađ heyra ađ ţáttastjórnandinn hafi ekki verulegar áhyggjur af neinu nema áformađri hćkkun erfđafjárskatts !
Ţessi ţáttastjórnandi kallađi Ţróunarsamvinnustofnun Íslands kratabúlluna ţađan sem mokađ er milljörđum", sagđi hann efnislega , -- undir rassinn á einhverjum vitleysingum úti í heimi! Ótrúlegt.
Ekki er ađ efa ađ í allan heila dag (04.10.2010) mun Útvarp Saga hvetja til óláta viđ Alţingishúsiđ í kvöld.
Frétta- og ţjóđlífsţátturinn Landinn fór ágćtlega af stađ í Ríkissjónvarpinu og virđist lofa góđu. Umfjöllunin um grásleppuna hefđi mátt vera ögn ítarlegri. Makalaust ađ viđ skulum kasta á fimmta ţúsund tonnum af öndvegismat í sjóinn. Borđađi oft grásleppu sem krakki, bćđi nýja , saltađa og signa. Verst var mér viđ ađ ţurfa líka ađ éta hveljuna.
Hjartaknúsarinn, sem sneri höfđum, er ákaflega útlensk fyrirsögn í sunnudagsmogga (03.10.2010) Hrátt úr ensku.
Fréttamađur Stöđvar tvö (02.10.2010) talađi um samanrekinn grunnskóla og leikskóla. Ađ vera samanrekinn er ađ vera kraftalega vaxinn, ţrekinn án ţess ađ vera feitur, sterklegur. Klaufalegt orđalag, en kannski ţekkir fréttamađurinn ekki orđiđ samanrekinn.
Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (02.10.2010) var sagt frá járnbrautarslysi á eyjunni Java. Ţađ er gróin málvenja í íslensku ađ beygja nafn ţessarar eyjar. Ţess vegna hefđi átt ađ tala um járnbrautarslys á Jövu. Á ţetta hefur Bjarni Sigtryggsson líka bent . Í fréttum Ríkissjónvarps var rétt fariđ međ ţetta.
Bjarni Sigtryggsson, sendi Molum eftirfarandi: "The White House Chief of Staff" er ekki starfsmannastjóri Hvíta hússins, eins og iđulega er sagt í fréttum. Algengasta enska heitiđ á
starfsmannastjóra er "Director of Human Resources".
Um ţetta starfsheiti segir svo á Wikipedia frćđasíđunni: "The White House Chief of Staff is the highest ranking member of the Executive Office of the President of the United States President. The
office-holder has been dubbed "The Second-Most Powerful Person inWashington" due to the nature of the job." and a senior aide to the President."
Starfsmannastjóri fer jafnan međ ráđningar- og kjaramál starfsfólks, starfsmannastefnu og skyld mál. Nćr vćri ađ titla Rahm Emanuel forsetaritara, vilji menn leita hliđstćđna í íslenzkum embćttum.
Einnig mćtti kalla hann yfirmann forsetaembćttisins."

Rétt er ţađ sem ţarna kemur fram, ađ forsetaritarinn er ćđsti embćttismađur forsetaskrifstofunnar og hefur veriđ nefndur nćst valdamesti mađurinn í Washington og nánasti samstarfsmađur forsetans. En svo virđist sem íslenskir fréttamenn séu búnir ađ festa ţessa vitleysu í sessi. Ađ kalla ţennan embćttismann starfsmannastjóra er út í hött.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (3)