Molar um málfar og miðla 443

 Úr frétt á mbl.is (27.10.2010): Þó eru nokkrir áhafnarmeðlimir sem völdu að sigla allt tímabilið.  Molaskrifara  finnst áhafnarmeðlimur vera orðskrípi. Þarna hefði auðvitað átt að tala um skipverja (ekki skipsverja eins og  skrifað var á skjá Ríkissjónvarpsins í tíufréttum). Skrítið er líka að tala um að sigla allt  tímabilið. Betra hefði verið að segja, - sem ákváðu  að vera um borð allan tímann.

 Af fréttavef Ríkisútvarpsins (27.10.2010): „Þá fundum við 30 tilfelli þar sem um var að ræða lyf eða náttúruefni, flest voru að völdum sýklalyfja en auk þess fjögur þar sem grunur lék á að að þetta væri að völdum Herbalife því það voru engin önnur lyf til staðar.“  Í þessari klausu er tvisvar sinnum  sagt að eitthvað sé að völdum einhvers. Á auðvitað að vera  af völdum einhvers.  Síðar  í fréttinni er talað um lifraskaða, - á að vera lifrarskaða.

  Hagræðingin hjá Fréttastofu Ríkisútvarpsins gerir að verkum að nú  heyrum við ambögurnar fyrst í útvarpsfréttum klukkan  sex.  Svo eru þær endurteknar í sjónvarpsfréttum klukkan sjö.  Þannig var í báðum fréttatímunum (27.10.2010) talað um  að tjaldi hefði verið slegið upp fyrir framan Mæðrastyrksnefnd.  Hið rétta var, að  tjaldi  hafði verið slegið upp við húsakynni eða bækistöð  Mæðrastyrksnefndar.

  Í fréttum Stöðvar  tvö  talaði stjórnmálamaður um hreyfingu á sköttum. Hann var að  tala um skattahækkanir. Stjórnmálamenn eiga að tala mannamál og nefna hlutina réttum nöfnum.

  Í íþróttafréttum Ríkissjónvarpsins var talað um að  svara könnun og æfa reglulegar æfingar. Molaskrifara hefði hér þótt betra að tala um að taka þátt í könnun og   að æfa reglulega.


Bloggfærslur 29. október 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband