Molar um málfar og miđla 442

    Tapađi máli vegna Hólmsheiđi ,segir í fyrirsögn á mbl.is (26.10.2010).  Hér átti  sá sem  fyrirsögnina  samdi  ađ beygja  örnefniđ  Hólmsheiđi og  hafa ţađ í  eignarfalli: Tapađi máli vegna Hólmsheiđar.  Grunnskólavilla.  

   Béađur ársgrundvöllurinn var á sveimi í fréttatímum Ríkisútvarpsins (26.10.2010). Ársgrundvöllur er óţarft orđ , miklu betra  er ađ  segja á ári , eđa á einu ári.  Ţetta er eitt  af fyrstu orđunum,sem  Molaskrifari lćrđi ađ forđast á   sínum byrjendaárum í blađamennsku. Og  ekki var betra  ţegar ágćtur  fréttaţulur  Ríkissjónvarps   sagđi, ađ  fé hefđi skipt um hendur. Ómenguđ aulaţýđing úr ensku. Fé hefur ekki hendur. Ţess vegna getur fé ekki skipt um hendur. 

 Í  fréttum  Ríkissjónvarps var einnig sagt ađ sex manns hefđu  brunniđ illa. Molaskrifara hefđi  ţótt betra  ađ tala um ađ sex manns hefđu  hlotiđ  alvarleg brunsár   eđa brennst illa, ekki  brunniđ illa.

  Vilja ađ stjórnvöld leggi sitt á  vogaskálarnar, segir visir.is í fyrirsögn (25.10.2010). Hér ćtti auđvitađ ađ tala um vogarskálar , ekki vogaskálar. Vogarskál er önnur af  skálum vogar, eins og segir í Íslenskri orđabók.

    ...hversu lítiđ ţeir versla  af slíkum vörum, sagđi  umsjónarmađur Kastljóss Ríkisútvarpsins viđ okkur (25.10.2010). Hann átti  viđ hversu lítiđ  vćri keypt af slíkum vörum. Molaskrifari leggur  til ađ  málfarsráđunautur Ríkisútvarpsins haldi fund međ  starfsmönnum fréttastofu og Kastljóss og  skýri  fyrir ţeim muninn á  sögnunum ađ kaupa og versla.

Svo sló klukkan tuttugu og fímm mínútur yfir tvö, sagđi fréttamađur í Kastljósi (25.10.2010) Skrítin klukka ţađ. Hef bara séđ klukkur,sem slá á hálfa og heila tímanum.

...ef marka má Ragnar Ađalsteinsson verjandi fjögurra ţeirra, sagđi ađalţulur í fréttatíma Stöđvar  tvö (25.10.2010). Orđiđ  verjandi  átti ţarna  auđvitađ ađ  vera í ţolfalli. Fréttamađur tvítók síđan í  fréttinni:  Ragnar Ađalsteinsson vill meina.  Betra hefđi veriđ,ef hann hefđi sagt: Ragnar Ađalsteinsson  telur, Ragnar  Ađalsteinsson er ţeirrar skođunar....

 Morgunblađiđ (28.10.2010) kallar turnhryllinginn í  Túnunum eitt svipmesta kennileiti borgarinnar. Víst er um ţađ ađ   hvergi er  hćgt ađ horfa  til borgarinnar úr grenndinni án ţess ađ ţessi ósköp gnćfi yfir allt og stingi í augu. Í augum Molaskrifara verđur ţessi turn aldrei annađ en minnisvarđi um óprúttna verktaka , sem keyptu sér veikgeđja stjórnmálamenn, sem  voru tilbúnir  til ađ eyđileggja  ásýnd borgarinnar. Hástig pólitískrar spillingar.

 Es. Fram kom í  fréttum ađ   turnhörmungin skyggđi á innsiglingarvitann í turni Sjómannaskólans og ţyrfti ţví ađ reisa  nýjan vita međ ćrnum tilkostnađi.  Ćtlar Jón Gnarr ađ láta íbúa Reykjavíkur borga ţann kostnađ?  Kannski ćtti ađ tattúvera mynd af turninum á enni ţeirra ,sem  leyfđu ţessi ósköp.


Bloggfćrslur 28. október 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband