Molar um málfar og miđla 419

 Skrifađ er á pressan.is (29.09.2010): ...en stöđvarnar höfđu deilt um hvort fyrrnefnda stöđin bćri skylda til ţess.  Hér hefđi átt ađ segja:...  hvort fyrrnefndu stöđinni bćri skylda til ţess. Máltilfinning ekki til stađar.

 Viđ erum áratug eftir á, sagđi fréttamađur Stöđvar tvö (30.09.2010) og átti viđ, ađ viđ vćrum áratug á eftir ţeim, sem um var rćtt.

 Fín músík hjá KK á Rás eitt á morgnana. Hann er ótrúlega naskur ađ finna hljóđritanir, sem  sárasjaldan heyrast.

Úr mbl.is (30.09.2010): Tildrögin voru ţau ađ tilkynning barst um yfirstandandi innbrot í hverfinu. Í hönd fór leit ađ innbrotsţjófum en lokađ var fyrir ađkomuleiđir ađ hverfinu. Yfirstandandi innbrot!  Í hönd  fór leit ! Lokađ  fyrir ađkomuleiđir ! Vćntanlega var veriđ ađ koma í veg fyrir ađ ţjófarnir kćmust út úr hverfinu, ekki inn í ţađ. Ekkert  af  ofangreindu er  í rauninni  rangt,  ţótt orđatiltćkiđ ađ loka fyrir leiđir sé ekki í samrćmi viđ málvenju, en ........

  Molaskrifari lagđi ţađ á sig á hlusta á síđdegisútvarp Útvarps Sögu (30.09.2010) á leiđinni  austur í sveitir. Kynningartónlistin í upphafi var eins og margframlengd endurómun á upphafstónlist biblíumyndar eftir bandaríska  leikstjórann Cecil B. DeMille (Bođorđion tíu , ofl. ).  Annars var ţátturinn óttalegur ţunnur ţrettándi. Eitt og annađ var ţó bitastćtt hjá lagadoktornum.  Útvarpsstjórinn afhjúpađi   fávisku sína, ţegar í ljós kom, ađ  hún veit ekki , ađ orđiđ alkálfur er notađ um  kálf, sem alinn er til slátrunar !

  Ekkert lát er á lögbrotum stjórnenda Ríkisútvarpsins, ţegar kemur ađ áfengisauglýsingum.  Ađ kveldi  miđvikudags (29.09.2010) á  undan og eftir  ágćtri Kilju Egils (kostađi mig tvćr nýjar bćkur) var  auglýstur bjór og ágćti bjórţambs. Orđiđ léttöl var  nćr algjörlega ósýnilegt og ţví ólćsilegt á  flösku  hćgra megin á  skjánum. Hvernig er  hćgt ađ ćtlast til ţess, ađ  almennir  borgarar beri virđingu  fyrir lögum landsins, ţegar hiđ opinbera,  fulltrúar  stjórnvalda brjóta lögin blygđunarlaust í augsýn alţjóđar Ţađ er til skammar ađ láta  Ríkisútvarpiđ komast upp međ ţessa ósvinnu. Stjórnendur RÚV eiga ađ sćta ábyrgđ fyrir lögbrot.


Bloggfćrslur 1. október 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband