5.9.2009 | 09:28
Molar um málfar og miðla CXLIII
Á Vefvísi stendur (04.09.2009) og er haft eftir Sigurði Einarssyni fyrrum Kaupþingsstjóra: Á Íslandi, líkt í Lúxemborg, væri hægt að tjónka við eftirlitinu (eftirlitið=fjármálaeftirlitið) . Sögnin að tjónka við þýðir að stjórna , hemja eða ráða við. Hún stýrir þolfalli. Tjónka við einhvern. Hér lætur blaðamaður sögnina stýra þágufalli sem er rangt. Ræða Sigurðar var flutt á ensku þannig að ambagan er á ábyrgð blaðamanns Vefvísis. Upphaf setningarinnar ætti líka að vera: Á Íslandi, líkt og í Lúxemborg. Ritstjórn vefvísis gengur illa að tjónka við lélega penna.
Mikil rausn er það hjá þjóðarútvarpinu að fjalla einu sinni í viku um daglegt mál í morgunþætti Rásar eitt. Þakka ber, þótt lítið sé.
Bjarni Sigtryggsson sendi Molum eftirfarandi pistil:"Lík þriggja ungabarna finnast í húsi"
Þannig hljóðar fyrirsögn á frétt dv.is um óhugnanlega uppgötvun. Fréttin hefst á þessum orðum.
"Þrennt hefur verið handtekin eftir að lík þriggja nýfæddra barna frá níunda áratug síðustu aldar fundust í húsi í úthverfum Merseyside í Englandi."
Hér er ýmislegt athugavert. Í fyrsta lagi sú árátta að tala um ungabörn, þar sem átt er við ungbörn. Barnalegt málfar, sem fólk ætti að hafa hætt að nota strax eftir leikskóla. Í öðru lagi finnst mér enn hjákátlegt að tala um "á síðustu öld" þegar um er að ræða atburði sem gerðust seint á tuttugustu öldinni. Það er svipað og að segja "í fyrra" um nýliðna daga strax í upphafi nýs árs. Loks er það þetta með Merseyside í Englandi. Borgin Liverpool stendur við ósa Mersey ár og allt það byggðarlag (Liverpool, Runcorn og aðliggjandi bæir) er gjarnan nefnt Merseyside. Skýrara hefði verið að segja að þetta hefði gerst í úthverfi Liverpool. - kv Bjarni
Molaskrifari er reyndar ekki sammála Bjarna um að orðið ungabarn sé barnamál. Skrifari leggur orðin ungbarn og ungabarn að jöfnu. En um það má sjálfsagt deila. Mér finnst reyndar líka í lagi , þegar talað er um atburði sem áttu sér stað fyrir aldamót að segja á öldinni sem leið, - felli mig betur við það orðalag en að segja á síðustu öld. Landafræðina í grennd við Liverpool þekki ég ekki ,en sjálfsagt er þetta rétt. Þakka sendinguna og áhugann,sem hún gefur til kynna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)