Molar um málfar og miđla CXLII

Molaskrifara verđur tíđrćtt  um Ríkisútvarpiđ, enda  er ţađ sá  fjölmiđill og  sú fréttalind sem flestir landsmenn nýta og ţađ er ţjóđin öll sem á ţetta  opinbera hlutafélags  eins og   hamrađ  er á í auglýsingum. Slakt  ţótti  molaskrifara ađ í sjöfréttum hljóđvarps  (03.09.2003) voru ađeins ţrjár  fréttir  (fyrir utan stutta íţróttafrétt). Fyrsta frétt var  reyndar innlend frétt um  slökkviliđ höfuđborgarsvćđisins og  Reykjavíkurflugvöll, sem  búiđ var ađ  birta kvöldiđ áđur.

Ţađ var ágćtlega ađ orđi komist  í fréttum RÚV   sjónvarps (03.09.2009) ţegar sagt var ađ lögreglan hefđi upprćtt kannabisplöntur.  Líka   var gott  ađ  sagt var Í RÚV  fréttum ađ  ný  brú  hefđi veriđ   formlega  tekin í notkun yfir Mjóafjörđ vestra.  Stöđ  tvö  sagđi  hinsvegar  í fréttayfirliti ađ samgönguráđherra  hefđi vígt  nýja brú. Kristján Möller  samgönguráđherra vígir ekki eitt né neitt, enda  ekki  vígđur mađur. Meira um Stöđ  tvö.  Ţar flaskađi  fréttamađur  á  framburđi  á heiti  ríkisins Arkansas í Bandaríkjunum . Hann bar ţađ  fram  međ  sterku ess-hljóđi í lokin. Réttur  framburđur   er   hinsvegar   eftir  einfaldri  hljóđskrift: Arkanso.  Ţetta hélt ég ađ  vćri eitt  af ţví fyrsta  sem  fréttamenn tileinkuđu sér  varđandi framburđ  erlendra  stađanafna. Enn heyrir mađur   KonnekkTikött (Connecticut),  í stađ Konnettikött

Ţađ var annars athyglisvert  ađ  Ríkisútvarpiđ  skyldi  sjá  ástćđu til ađ  biđja  knattspyrnuáhugamenn sérstaklega velvirđingar á ţví ađ sýning frá  framlengingu einhvers leiks í útlöndum yrđi ekki á dagskrá fyrr en  seint í kvöld. Ég man ekki til  ţess ađ almennir áhorfendur hafi veriđ  beđnir  velvirđingar ţví ţegar  fréttum er ýtt  til  hliđar  til ađ sýna frá íţróttaviđburđum af ýmsu tagi. Ţó má ţađ vera.

Tvísagt var í fréttum RÚV sjónvarps klukkan sjö (03.09.2009) ađ eftir   fyrsta desember  ţyrfti ađ  flytja  tuttugu  tonn af  sorpi  af  Suđurlandi til urđunar í Reykjavík. Kostnađur yrđi um 200 milljónir. Ţetta var óskiljanlegt međ öllu. Í  tíu fréttum var ţetta svo leiđrétt og sagt ađ hér   vćri um ađ rćđa  tuttugu ţúsund tonn af sorpi. Ţađ var allt annar handleggur. Einkennilegt hvernig  svona  augljósar  villur  fara í gegnum margar síur.

Karlmađur í Flórída í Bandaríkjunum brá heldur betur í brún ţegar hann sá froskaleifar í Pepsi-dós sem hann hafđi opnađ,  skrifar  Vefmoggi (03.09.2009). Mér brá í brún viđ ađ lesa ţetta.Mađur  bregđur ekki í brún. Manni  bregđur í brún. Ţess vegna hefđi ţarna átt ađ standa : Karlmanni í Flórída í Bandaríkjunum brá heldur betur í brún...Svo verđur  Molaskrifari ađ játa  ađ honum finnst  orđiđ  froskaleifar óvenjulegt ađ  ekki sé  meira  sagt!


Bloggfćrslur 4. september 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband