1.9.2009 | 08:22
Molar um málfar og miđla CXXXIX
Áhugamađur um tunguna benti Molahöfundi á eftirfarandi klausu í Vefmogga:Báturinn hefur hlotiđ nafniđ Le Dré en skírnarathöfn undir stjórn Peters Bürchers biskups kaţólsku kirkjunnar á Íslandi, fór fram í Hafnarfjarđarhöfn fyrir sjósetningu bátsins." Síđan spyr sá sem rak augun í ţetta: Er unnt ađ skíra bát? Er skírn ekki ţađ, ţegar mađur er tekinn í samfélag kirkju? Getur bátur gerst slíkur félagi? Er honum ekki gefiđ nafn?" Auđvitađ er ţetta hárétt. Bátar og skip eru ekki skírđ. Ţeim eru gefin nöfn. Svo má bćta viđ ađ sagt er ađ ţessi athöfn hafi fariđ fram í Hafnarfjarđarhöfn fyrir sjósetningu bátsins". Ef báturinn hefur veriđ í Hafnarfjarđarhöfn hefur veriđ búiđ ađ sjósetja hann.
Ţetta minnir á notkun sagnarinnar ađ vígja, sem nú er orđiđ algengt ađ nota ţegar ný mannvirki eru tekin í notkun. Ţegar Molaskrifari skrifađi fréttir fyrir meira en ţrjátíu árum var lögđ rík áhersla á ađ ekki vćri sagt ađ mannvirki vćri vígt, nema prestvígđur mađur blessađi ţađ og ţá sem ţađ notuđu. Nú má nota orđ Torfa Erlendssonar sem á ađ hafa sagt allan andskotann vígja ţeir", ţegar Hallgrímur Pétursson var vígđur til embćttis sem prestur á Hvalsnesi.
Í sjö fréttum RÚV í morgun (01.09.2009) sagđi fréttamađur ađ lán hefđi veriđ neytt upp á Íslendinga". Ţetta er rangt. Hann hefđi átt ađ segja ađ láni hefđi veriđ neytt upp á Íslendinga. Ţađ er talađ um ađ neyđa einhverju (ţgf.)upp á einhvern. Ambagan var endurtekin í áttafréttum. Heyrnartćkin eru ekki í lagi í Efstaleitinu.
Margt er skrítiđ í dagskrárgerđ RÚV. Mér er til dćmis algjörlega óskiljanlegt hversvegna Kastljós er endursýnt klukkan ađ ganga tvö ađ nóttu. Langflestir ţeirra sem missa af Kastljósi á venjulegum útsendingartíma geta horft á ţáttinn á netinu. Eldri borgarar sem ekki eru međ tölvu vaka varla eftir endursýningu fram á miđja nótt. Ef nauđsynlegt er ađ endursýna Kastljós ćtti ađ gera ţađ á skikkanlegum tíma daginn eftir frumsýninguna.Raunar eru ţessir ţćttir oft ţannig ađ ekki er nokkur ástćđa til ađ endursýna ţá. Varla getur veriđ ađ endursýningin sé einhverskonar launauppbót starfsmanna. Ţví vil ég alls ekki trúa.
Sagt er frá verđhćkkunum á ýmsum matvörum í fjölmiđlum í dag. Bónus , ţar sem Molaskrifari verslar jafnan tók forskot á sćluna. Lítil ferna af jógúrt frá Húsavík hafđi í gćr (31.08.2009)hćkkađ úr 167 kr. í 172 kr. Kostađi reyndar fyrir 10 dögum eđa svo 163 kr.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (5)