7.8.2009 | 12:27
Molar um málfar og miđla CXVIII
Jóhanna Kristjánsdóttir, mín gamla vinkona og skólasystir, kvartar yfir ţví á fésbókinni ađ lítt sé skrifađ um málfar í fjölmiđlum. Hér hafa veriđ birtir 118 pistlar ,- langflestir um ambögur og hortitti. En vissulega hefur einnig veriđ vikiđ ađ ýmsu öđru. Pistlarnir gćtu veriđ fleiri,- ţađ er nógu ađ taka.
Í fréttum Stöđvar tvö (05.08.2009) var sagt frá ţví ađ vinsćll kóalabjörn hefđi veriđ aflífađur í Ástralíu , en hann var međ ólćknandi sjúkdóm. Svo var tekiđ til orđa ađ hann hefđi veriđ mörgum harmadauđi. Ţađ orđ er ekki til í okkar máli. Viđ tölum um harmdauđa og harmagrát.
Einhver ótrúlegasta frétt,sem lengi hefur heyrst er ađ formađur Framsóknarflokksins hafi krafist ţess ađ sendiherrar erlendra ríkja mćtttu til yfirheyrslu á fund utanríkismálanefndar. Fréttin segir okkur ađ formađurinn veit ekki mikiđ um gangverk stjórnkerfisiins eđa samskipti viđ erlend ríki og fulltrúa ţeirra. Framsóknarmenn ćttu ađ senda formann sinn á skólabekk.
Hafi einhver hyggju á ađ, var sagt í fréttum Stöđvar tvö ((04.08.2009), Hér ruglađ saman. Annađ hvort hefđi átt ađ segja: Hafi einhver í hyggju eđa hafi eihver hug á.
Ţađ hlýtur ađ vera Sjónvarpi ríkisins mikiđ áhyggjuefni hve auglýsingar í sjónvarpi hafa hrađminnkađ. Ađalauglýsingarnar eru nú dagskrárkynningar og auglýsingar um eigiđ ágćti Ríkisútvarpsins og ţeirra sem ţar starfa, en ţar starfar auđvitađ margt ágćtisfólk.
Í fljótu brgađi sýnist mér ađ Ríkissjónvarpiđ sé ađ verđa undir í samkeppninni viđ Stöđ tvö, ÍNN og Skjá einn.
Í guđanna bćnum, stjórnendur Rúv, fćriđ okkur aftur gömlu Rás eitt á morgnana og hćtttiđ ţessu morgunfrúarbulli. Ţetta segi ég sem einn af eigendum RÚV, en viđ erum auđvitađ bara til ađ guma af íauglýsingum um ágćti stofnunarinnar . Ráđum engu. Svo mćtti einhver í tónlistardeildinni segja morgunfrúnni ađ ljóđrćnt , venjulega stutt tónverk´sem á ensku heitir Romance, er ekki kallađ rómans á íslensku, heldur rómansa. Alla vega veit ég ekki betur en viđurkenni ţekkingarleysi mitt á sviđi tónlistarinnar.
Hlýddi á stórkostlega flaututónleika í Skálholtskirkju í gćrkveldi. Óvenjulegir tónleikar, glćsilegir, Frábćrt listafólk,sem skilađi sínu međ sćmd. Yndisleg kvöldstund.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (2)