8.7.2009 | 13:37
Molar um málfar og miđla CII
Sjónvarpsfréttir RÚV ( 07.07.2009) og Ţóra Arnórsdóttir í Kastljósi fá prik fyrir umfjöllun um Sjóvá-Milestone -Askar svindliđ. Varpađ var ljósi á máliđ og ţetta skýrt á mannamáli. Vilhjálmur Bjarnason hitti naglann á höfđuđiđ í lokin, - eins og hann hefur svo oft gert. Fáránlegt er hinsvegar ađ Kastljós skuli fara í sumarfrí , ţegar Alţingi er ađ ljúka störfum og ótal mál á lokasnúningi. Dćmigert stjórnleysi hjá RÚV. Kastljós hefđi átt ađ bíđa ţingloka međ sumarleyfi.
Skrifađ stendur á Vefvísi (04.07.2009): ...verktakafyrirtćkiđ KNH ehf., ţarf ađ stađgreiđa fyrir tćkjabúnađi ţar sem breskt fyrirtćki treystir ekki íslenskum bönkum. Hér hefđi átt ađ segja: stađgreiđa tćkjabúnađ. Einfalt mál? Ekki fyrir ţann sem er illa ađ sér í íslensku.
Vefdv skartar eftirfarandi (06.07.2009): ... segir móđir stúlkunnar ađ hana hafi hlakkađ mikiđ til heimsóknarinnar. Meiri snilld úr sama vefmiđli: Hún játađi einnig ađ hafa ekiđ bifreiđ frá Reykjavík uns vestan viđ Markarfljót ţegar lögregla hafđi afskipti af henni. Ekki verđur sagt ađ mikiđ fari fyrir skýrri hugsun í ţessari setningu.
Auglýsingastofur eiga margar erfitt međ ađ koma frá sér óbjöguđum texta. Í helgarútgáfu Fréttablađsins (04.07.2009) stóđ eftirfarandi í auglýsingu frá Korputorgi: Ţeir sem versla á Korputorgi býđst ađ taka ţátt í léttum og skemmtilegum ratleik...
Ótrúlega margar villur eru í stuttri frétti á Vefvísi (06.07.2009) um bát sem leki kom ađ á Skagafirđi. Fyrst er sagt ađ báturinn hafi veriđ í Skagafirđi, - ţađ er inni í landi, - auđvitađ var báturinn á Skagafirđi. Í öđru lagi er tvísagt ađ lekiđ hafi komiđ ađ bát, ekki báti eins og rétt er.Beygingin er bátur, bát, báti , báts. Ţá er sagt ađ báturinn hafi veriđ 2,5 sjómílum frá Drangey, en á auđvitađ ađ vera 2,5 sjómílur. Ţađ er afrek út af fyrir sig ađ koma svo mörgum villum í svo fáar línur. Á fréttavef RÚV (06.07.2009) er fyrirsögn á frétt um ţennan sama atburđ: Björguđu sjómanni norđan af Drangey ! Hér hefđi átt ađ segja norđur af Drangey.
Meira af Vefvísi (06.07.2009). Í frétt um slys í Hvalfjarđargöngum segir: Ekki er ljóst á ţessari stundu hvenćr göngin opna. Hvenćr göngin opna hvađ? Ţađ sem skrifari á viđ er ađ ekki sé ljóst hvenćr göngin verđi opnuđ.
Viđ erum ađ sjá verulega aukningu í komum á ţjónustumiđstöđvar borgarinnar ,sagđi embćttismađur Reykjavíkurborgar (04.07.2009) í hádegisfréttum RÚV.
Svo vćri ekki úr vegi ađ fréttamenn RÚV samrćmdu framburđ sinn á heiti frumbyggjanna í Xinjiang í Kína og höfuđborginni ţar Urumqi. Ţar er ađ gerast mikil sorgarsaga. Ţetta er gríđarlega áhugavert land. Borgirnar Kashgar og Urumqi eru einhverjar ţćr eftirminnilegustu sem ég hef heimsótt og eiga sér merka sögu. Gamla Austur Túrkestan er eitt af löndum framtíđarinnar auđlindaríkt og áhugavert fyrir margra hluta sakir.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (6)