Framsóknarbloggarar fara hamförum

  Framsóknarbloggarar far nú hamförum á blogginu og freista þess að bera í bærifláka  fyrir   formann sinn, sem  gerði  sig eftirlminnilega  að  fífli í ræðustóli  Alþingis í dag. Það er ekki hægt að  afsaka  eða  réttlæta  framferði  formannsins,sem  alþjóð hefur  nú séð  oftar en einu sinni í sjónvarpi. Það er  auðvelt  að  skilja  að venjulega  fólki  er   ekki bara  nóg  boðið  heldur misboðið.  Raunar hafa fleiri  þingmenn Framsóknar í ræðustóli á  Alþingi  notað  orðbragð sem   er óboðlegt.  Bölv, ragn og klámyrði. Óreynt þinglið  flokksins heldur að þetta  sé stjórnarandstaða. Þetta er ekki  stjórnarandstaða. þetta er skortur á mannasiðum.
mbl.is Óásættanleg framkoma forsetans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað kemur næst frá Framsókn?

  Þeir sem  fylgjast  með sjónvarpsútsendingum  frá  Alþingi eru orðnir  ýmsu vanir  frá þingmönnum Framsóknarflokksins. Við höfum fengið  að heyra blótsyrði og  tal um blauta drauma ríkisstjórnarinnar, svo smekklegt  sem  slíkt  orðbragð nú er. Í  gær  heyrðum  við   formann   Framsóknarflokksins   garga á þingheim úr  ræðustóli þingsins. Það jaðraði við að hann væri ær.Hann gargaði  raunar á okkur líka sem  sátum heima í  stofu. Í  dag hrökklaðist  formaðurinn úr  ræðustóli, undan röggsemi  forseta, þegar hann  reyndi að misnota   dagskrárliðinn Umræður um fundarstjórn forseta.

Kjósendur   Framsóknarflokksins eru líklegar  stoltir  af  sínum mönnum.


mbl.is Einleikur forseta á bjöllu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. júní 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband