Molar um málfar LXXXI

Í fréttum  RÚV  (kl. 1800 31.05.09.)  var  sagt:  Tilraunir til ađ koma á  lýđrćđisumbótum í Zimbabwe hafa brugđist.  Tilraunir bregđast  ekki , ţćr  mistakast eđa fara út um ţúfur. 

Einkennilega fannst mér   til orđa  tekiđ í hádegisfréttum RÚV (01.06.09.) ţegar sagt  var: ... ef  svo óheppilega vill  til ađ  flugvél hverfur  af ratsjá...

Silja,sem er áhugamađur um íslenskt mál, sendi mér  eftirfarandi línur: „....ég rak augun í leiđinlega villu í viđtali viđ fjallgöngumann í blađi sem fylgdi međ Morgunblađinu, á helginni held ég.
Ţar var eitthvađ ,,ađ sögn Haraldar Örn Ólafssonar". Ég efast um ađ
mađurinn heiti Örn ađ ćttarnafni og mér finnst mjög lélegt af blađinu ađ
geta ekki beygt nafniđ!"  Beygingaleti  eđa  beygingafćlni er  vaxandi  vandamál í fjölmiđlum.  Morgunblađiđ ćtti ađ sjá  sóma  sinn í ađ gera betur en ţetta.  Takk  fyrir ábendinguna, Silja.

Annađ  dćmi um  beygingafćlni  af Vefvísi (01.06.09.) :Vélin var á leiđ frá Rio de Janeiro í Brasilíu og var á leiđ til París. Á íslensku ćtti ađ segja : Vélin var  á  leiđ frá  Rio de Janeiro  til Parísar.  Sá  sem  skrifar svona er  kannski  bara enn á ţví  málţroskastigi ađ hann ćtti ađ vera úti á  götu ađ hoppa  parís  eins og  sagt var í gamla  daga !

Í heilsíđuauglýsingu um ferđir međ  ferjunni  Norćnu (Morgunblađiđ, 31.05.09.) eru  villur. Líklega  eiga íslenskar  auglýsingastofur met í málfarslegum subbuskap. Í auglýsingunni stendur  stórum  stöfum: Brottfarir  til  Fćreyja er alla miđvikudaga í allt  sumar. Fyrst er  til ađ  taka ađ orđiđ  brottför  er  venjulegast notađ í eintölu , ţótt flugfélög og ferđaskrifstofur geri  sitt besta til ađ  festa fleirtöluna í málinu.  Noti  menn fleirtöluna, ćtti     sögnin ađ  fylgja  fleirtölunni og   vera   eru  en ekki er alla  miđvikudaga. Ţađ  vćri  alveg   prýđilegt ađ segja  í ţessari  auglýsingu:  Brottför  til Fćreyja er á miđvikudögum í  allt  sumar. Varla  eru  margar  brottfarir á hverjum  miđvikudegi, -  eđa hvađ ?

Einnig  er í auglýsingunni  stórletruđ  fyrirsögn á  fćreysku:  Mćr dámar so vćl at sigla  vi Norrönu. Ţótt ekki sé  ég    fćreyskufrćđingur  sé  ég ekki  betur  en í ţessari setningu  sé   villa. Ţarna ćtti ađ  standa: Mćr   dámar so vćl  at sigla  viđ Norrönu. - Mér líkar svo  vel ađ sigla međ Norrćnu. Í  fćreysku er  ekki til neitt  vi   en  fćreyska orđabókin gefur  dćmiđ: Hann  sigldi  viđ norđmonnum (viđ norskum skipum).  Mikil hrođvirkni og ađstandendum ekki til  sóma.


„Svona gera menn ekki" !

Morgunblađiđ birti um daginn myndir af veggjakroturum, sem  voru stađnir ađ verki.  Mér finnst í  góđu lagi  ađ  birta  myndir af  bílum ökumanna,sem misnota  stćđi fatlađra. Ţađ  skiptir engu hvort  ökumađurinn  situr í bílnum,  eđur ei. Söm  er gjörđin.  CIMG3704Siđađ fólk leggur  ekki í stćđi sem ćtluđ eru  fötluđum.  Eftir ađ hafa kallađ mig  dóna hundskađist ökumađurinn  burt. Myndin tekin viđ Hagkaup í Garđabć í hádeginu  á   annan í Hvítasunnu.

Bloggfćrslur 1. júní 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband