18.4.2009 | 23:34
Molar um málfar LV
Í myndatexta á forsíđu Moggans (17.04) segir:Á annađ ţúsund rúmmetrar af fyllingarefni fara í Landeyjahöfn á Bakkafjöru". Ţessi setning var svo lesin athugasemdalaust í morgunútvarpi Rásar tvö ţegar stiklađ var á efni dagblađanna. Molahöfundur er ekki verkfróđur, en sá ţó í hendi sér, ađ hér var eitthvađ málum blandiđ. Ef tíu námutrukkar flytja grjót í höfnina og hver ţeirra ber 40-50 tonn í ferđ ţá eru ţetta svona 30-50 ferđir. Samkvćmt upplýsingum Suđurverks sem gerir höfnina fara 600 ţúsund rúmmetrar af grjóti í garđana viđ höfnina (1.2 milljónir tonna) en alls er efnismagniđ sem notađ er til hafnargerđarinnar meira en milljón rúmmetrar og er ţá vegagerđ íreiknuđ. Ţađ er dálítiđ meira en á annađ ţúsund rúmmetrar. Ţetta er gott dćmi um hvernig augljós villa fer í gegn um allar síur Moggans (kannski eru engar síur lengur) og svo er villan lesin gagnrýnilaust fyrir hlustendur Ríkisútvarpsins. Líklega hefur sá sem skrifađi textann ekki hugmynd um hvađ rúmmeter er og veit ekki heldur hvađ höfn er. Skylt er ađ geta ţess ađ rugliđ var leiđrétt í Mogga daginn eftir.
Ný sinfóníuhljómsveit lék saman í fyrsta skipti í kvöld" var sagt (16.04.) í fréttum Stöđvar tvö. Hljómsveit er flokkur hljóđfćraleikara, sem leika saman. Ţessvegna hefđi hér átt ađ segja: Ný sinfóníuhljómsveit lék í fyrsta skipti í kvöld.
Alţingismađur talađi í dag (16.04.) um ađ fara í leiđangur til ađ flytja mál". Ţetta finnst mér ánalegt orđalag. Man ekki til ţess ţau fimmtán ár ,sem ég átti sćti á Alţingi ađ hafa heyrt nokkurn ţingmann taka svo til orđa. Mér er lífsins ómögulergt ađ tengja ţađ saman ađ fara í leiđangur og ađ flytja mál á ţingi. Mér finnst ţetta vera rugl.
Makalaust er ađ auglýsingastofur eđa auglýsingadeild RÚV skuli ekki leiđrétta augljósar málvillur í auglýsingum. Ţannig er í sjónvarpsauglýsingu frá Frjálslynda flokknum (17.04.) sagt: Góđir landsmenn, međ stuđning ykkar...". Augljóst er ađ segja ćtti : Međ stuđningi ykkar. Ţetta er kćruleysi og ekki vönduđ vinnubrögđ.
Bloggar | Slóđ | Facebook | Athugasemdir (0)