23.2.2009 | 19:52
Skítugt plast á ljósastaurum
Skítugir og tættir plastborðar sem einu sinni voru hvítir eru nú á næstum hverjum einasta ljósastaur milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar.
Mér er sagt, að samtök sem kenna sig við Nýtt lýðveldi hafi komið þessum plastborðum fyrir til að minna sig og málstað sinn.
Sé það rétt að þessi samtök beri ábyrgð á þessum umhverfissóðaskap ættu þau að sjá sóma sinn í fjarlægja þessar plastslitrur sem nú flygsast í vindinum. Varla ætlast þau til að bæjarstarfsmenn hreinsi þetta á kostnað skattborgara, - eða hvað ?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)