Hvađ skuldar fréttastofa RÚV Jónínu Ben.?

Fyrir nokkru var ţrísagt  í sama fréttatíma RÚV  sjónvarps,  ađ forsetafrúin  vćri ađ ađstođa viđ ađ  markađssetja stólpípumeđferđina  sem   athafnakonan Jónína Benediktsdóttir  rekur  nú  viđ Mývatn. Ađ ţví var  ţá vikiđ á ţessari  síđu.  Af fréttinni var ómögulegt ađ  ráđa annađ  en ađ frú Dorrit Moussajeff vćri einhverskonar verndari  eđa markađstjóri stólpípu- og  afeitrunarmeđferđar Jónínu.  Forsetaskrifstofan sendi  RÚV  leiđréttingu  ţess efnis  ađ ţetta vćri allt  misskilningur  hjá Jónínu Benediktsdóttur og fréttastofan varđ ađ birta leiđréttingu. .

Í kvöld var enn ítarlega fjallađ  um  međferđina  viđ Mývatn í fréttatíma  Sjónvarpsins. Ţetta var ekki frétt. Ţetta var hrein auglýsing, ókeypis  auglýsing, nokkurra  milljón króna virđi. Hvar eru nú hin faglegu  vinnubrögđ sem  hamrađ er á  í auglýsingum um ágćti  fréttastofunnar? Ţau  eru  víđsfjarri. Ţetta var   ófagmannlegt.   Svo er auđvitađ óţarf ađ  kalla ţetta  "detox". Ţađ er  enskusletta.  Stytting á  orđinu   "detoxification" sem á íslensku heitir  afeitrun. Hversvegna ekki kalla  hlutina  réttum nöfnum ?

Ţađ er  auđvitađ  óviđeigandi  ađ spyrja  hvort  Jónína hefur  bođiđ  starfsmönnum RÚV upp á  stólpípu  viđ Mývatn. Ţessi mikla umfjöllun hlýtur ađ eiga sér  einhverjar  skýringar. Kannski á   Jónína bara svona  góđa vini á  fréttastofunni.

Ţessi umfjöllun er í hćsta máta óeđlileg. Vinnubrögđ af ţessu  tagi auka ekki traust á fréttastofu RÚV.

PS Í fréttum   Sjónvarps RÚV í kvöld  var líka  sagt  frá  "óvćntum tónleikum" Bubba Morthens  viđ  Seđlabankann. Ţeir  voru  nú ekki óvćntari en  svo, ađ  sagt var frá ţeim í  fjölmiđlum í gćr, - kannski var fréttastofan  ţá  bara  ekki    á  vaktinni.


Bloggfćrslur 10. febrúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband