Molar: Er þetta það sem koma skal ?

 

Góðvinur og gamall samstarfsmaður  Molaskrifari sendi  það sem hér fer á eftir:  

Eftirfarandi bréf barst stjórnendum MK á dögunum frá nemanda sem vill
koma á nýtískulegum kennsluháttum í skólanum:


Mörgum nemendum finnst kennarar þeirra vera ótrúlega leim og voða mikið bara að kenna eitthvað júsless stöff. Allar bækurnar sem eru lesnar í íslensku eru t.d. most boring bækur ever sem enginn les nema einhverjir proffar!

Án djóks! Svo tala þeir einhvað fokking fornmál
og maður bara VÓ! og skilur ekki rass og svo hrauna þeir bara yfir mann ef maður spyr kannski aftur hvað hafi skeð fyrir einhvern í einhverri sögu!

Kannski ættu kennarar að pæla í því að gleyma gömlu kennsluaðferðunum sem eru nú ekkert til að hlaupa húrra fyrir og þeir eru búnir að nota síðan í örlý seventís og fara að öpdeita sig aðeins.

Þeir gætu t.d. komið sér upp kennslusíðum á feisinu og gætu þá addað nemendum og þá nottla bara þeim sem hafa áhuga. Þá gætukennararnir líka tjattað við nemendur og búið til allskonar quiz og test sem nemendum þætti gaman af í staðinn fyrir að vera alltaf að bögga  nemendur með sjúklega leiðinlegum prófum.

Svo er gegt góð hugmynd að nemendur gætu þá líka alltaf kommentað á t.d heimanámið því það er ógeðslega fúlt að hafa of mikið að gera eða verið með reitings á kennsluna og kannski gætu kennarar sem skora hátt fengið hærri laun eða eikkað.

Kennarar gætu líka verið með til dæmis groups umkjörbókarritgerð og þá gætu þeir bara joinað sem ætluðu að lesa heila bók eða sollis og fá þannig 10% .

Kennaranir gætu líka sett inn events þegar væri að koma próf og sent
nemendum bara invitation þá myndu allir pottþétt vita það. Ekki eins og núna þegar stundum er ekki einu sinni sagt manni að það sé próf næsta dag! Kommon!

Svo ef kennarinn sé veikur þá er næs að hann geti bara sett það í statusinn og nemendur sjá það og bara hjúkket! Frí!sjitt hvað það væri osom!

Svo gætu allir sett inn myndir – bara svona normal myndir –
ekkert djúsí sem kennarinn má ekki sjá ;) og þá er hægt að tagga aðra nemendur á myndunum og þá væri miklu meira easy skiluru fyrir kennarann að muna hvað allir heita sko.

Kennarar gætu líka kennt bara online og allir fengu mætingu ef þeir væru loggaðir inn. Það væri svít. Þá gætu nemendur bara tjillað heima kannski og dánlódað bara öllu draslinu í tölvurnar eða ipodana sína!

Allavega er aðal issjúið að kennarar átti sig á því að núna eru þeir í tómu tjóni og það sé möst að þeir geri huge breytingar á kennslunni sko! Sorrý en þeir verða að spá í að þeir eru líka í keppni við allt hitt stöffið sem nemendur geta skemmt sér við í tölvunum. Það er audda miklu skemmtilegra að spila tölvuleik eða að horfa á eitthvað á Youtube heldren að hlustá einhvern kennara tala. En whatever...eikkað
er greinilega að og því er skorað á kennara: Reynið að láta
nemendunum hlakka til að mæta í tíma til ykkar og þið rúlið!

Luv,
xoxo 

Þetta er sannarlega umhugsunarefni.
 
 
 


Molar um málþóf á Alþingi

    Það hefur um langa hríð verið ótrúlegt að fylgjast með stjórnarandstöðunni á Alþingi, þar sem reynslulausir foringjar ráða ferð. Stjórnarandstaðan er í minnihluta en heldur meirihlutanum í gíslingu með málþófi út um víðan völl. Málþófi um mál sem búið er að ræða meira og minna í hálft ár. Þar sem búið er að segja allt, oft. Við upplifum minnihlutann nauðga lýðræðinu og meirihluta þingsins. Líka sjáum við stjórnarandstöðuna misbeita þingskapalögum, þegar þingmenn sama flokks leggjast í andsvör hver við annan. Það er alveg ný tegund af  lýðræði ef minnihlutinn á að ráða. 

 

Nú þarf forysta þingsins að taka á sig rögg. Slíta ekki fundi fyrr en umræðum lýkur um Icesave deiluna. Það hefur verið gert áður á Alþingi. Molaskrifari minnist þess fyrir býsna löngu er verið var að breyta kvótalögum í efri deild. Þá héldu þingmenn Alþýðubandalagsins uppi málþófi. Umræður í deildinni hófust síðdegis. Þeim lauk um tíu leytið morguninn eftir. Þá var ekkert gefið eftir. Þeir sem héldu uppi málþófinu lásu m.a. upp úr bókum. Þá var Moggi til húsa í Aðalstræti og um fjögur leytið um nóttina sótti einhver Mogga næsta dags og rétti þingmanni sem var í ræðustóli. Hann byrjaði að lesa úr Mogganum, meðal annars auglýsingar. Auglýst var eftir blaðbera til að bera út Morgunblaðið í heimabyggð þingmannsins. Þá setti að honum svo mikinn hlátur að hann mátti vart mæla og tóku flestir viðstaddir undir.


 

Það er svo hámark hræsninnar að þegar þingmönnum stjórnarandstöðunnar er borið á brýn að halda uppi málþófi ( sem allt sæmilega vitiborið  fólk sér og heyrir að þeir eru að gera) þykjast þeir móðgaðir og særðir. Koma  af fjöllum og  skilja ekkert í þessum ásökunum. Hvað halda þeir að kjósendur séu? Fífl? 


 

 

 Líklega er það einsdæmi að stjórnarandstaða á nokkru þjóðþingi hafi hegðað sér eins og stjórnarandstaðan á Íslandi gerir nú. Þetta er séríslenskt fyrirbæri, rétt eins og Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur.   

Molar um málfar og miðla 209

   Á Morgunvakt Rásar tvö (25.11.2009) var fjallað um hangikjöt. Þá sagði umsjónarmaður: Það er ekki sama hvernig hangikjöt er gert. Þá vaknar spurningin: Gera menn hangikjöt? Spjallað var við starfsmann RÚV eins og alsiða er á þeim bæ, enda óþarfi að leita langt yfir skammt og vera að tala við utanhússfólk, nema í neyðartvikum.  Sá sagði um lyktina af tvíreyktu hangikjöti, að hún ætti að vera það sterk að hún leggi yfir alla sveitina. Molaskrifari er á því að hann hefði átt að segja um lyktina: að hana leggi yfir alla sveitina. Í norðanátt leggur reykinn frá loðnubræðslunni yfir bæinn. 

 

Þegar lögreglumaður lítur svo á að hann haldi ekki utan um ástandið getur það þó gerst að hann nái ekki að vara við. Þetta er haft eftir lögreglumanni (25.11.2009) á mbl.is . Að halda utan um ástandið er ekki vel að orði komist, mildilega orðað. Þarna hefði mátt segja , til dæmis: Þegar lögreglumaður telur, að allt sé að fara úr böndunum, 

 ... sem stelpunum langar í, sagði fréttamaður Stöðvar tvö (25.11.2009) og var þá að tala um forláta kaffivél  fyrir nýja kaffistofu á Akranesi.. Ef hann hefði verið laus við þágufallssýkina hefði hann sagt: .. sem stelpurnar langar í. Örstuttu síðar sagði sami fréttamaður:  ... þeim sem langar... Sjálfum sér samkvæmur í vitleysunni.

 Kynnir Kastljóss tóka svo til  orða (25.11.2009): Gasið spilar einmitt stórt hlutverk í að fyrirbyggja hjartasjúkdóma.  Mætti  Molaskrifari   biðja um minni áherslu á hárgreiðslu en meiri á málvöndun ?

 

 
  Ekki kunni Molaskrifari að meta að heyra seðlabankastjóra  (25.11.2009) tönnlast á að draga á lán og svo tala menn um að draga á lánalínur.  Sjómenn á línubátum draga línu, oftar þó línuna , með ákveðnum greini en um þessi margumtöluðu lán ætti að nota sagnirnar að nýta  eða taka.

 

 Rás tvö, Ríkisútvarpsins auglýsir nýjan útvarpsþátt undir  nafinu Bergson (með einu s ) og Blöndal. Molaskrifari vissi ekki betur en sá sem fyrra nafnið vísar til sé Bergsson. Það segir símaskráin að minnsta kosti.   Í tíufréttum RÚV sjónvarps (25.11.2009) talaði stjórnmálafræðingur um að hafa sínu fram. Ruglaði saman orðtökunum að fara sínu fram, halda fast við sína stefnu án tillits til annarra og að hafa sitt fram, fá vilja sínum framgengt.

 

 Nýlega var í Molum rætt um það að sum orð eru aðeins til í eintölu, önnur aðeins í fleirtölu. Blaðamaður Morgunblaðsins flaskar á þessu (26.11.2009) og skrifar: Mistök starfsmanns velferðarsviðs varð til þess...  Mistök er fleirtöluorð og þess vegna hefði blaðamaðurinn átt að skrifa: Mistök starfsmanns velferðarsviðs urðu til þess.... 

 

 Ríkisútvarpið hefur í áraraðir fylgt þeirri ágætu reglu að byrja ekki að flytja jólalög í dagskránni fyrr en eftir 1. desember.Umsjónarmenn Morgunvaktar Rásar tvö töldu rétt að brjóta þessa reglu (26.11.2009) og verja löngum tíma í að auglýsa nýja jólaplötu tiltekinnar hljómsveitar. Reglur Ríkísútvarpsins eru líklega bara til að brjóta þær.  

Bloggfærslur 27. nóvember 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband