15.11.2009 | 13:32
Mogginn leggst í ræsið
Nýrri ritstjórn Morgunblaðsins fylgja nýir pistlahöfundur. Á laugardaginn var lagðist Morgunblaðið í ræsið með birtingu pistils eftir Sverri Stormsker um Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur. Ritstjórarnir leggja blessun sína yfir sorann. Þessi pistill er eitt það sóðalegasta sem ég hef lesið í dagblaði. Þetta er verra en gamli Þjóðviljinn þegar hann var sem verstur og verra en orðljótustu leiðarar Jónasar Kristjánssonar, skrifaðir í geðillskuköstum.
Fyrirsögn pistilsins er klámkenndur orðaleikur.Viljandi gert. Morgunblaðið misbýður mörgu fólki með þessum skrifum og kemur þá pólitík ekkert við sögu.
Ritstjórnin er annaðhvort með öllu dómgreindarlaus eða hatursfull úr hófi. Nema hvort tveggja sé. Nú fer að styttast í að ég hætti að borga fyrir að fá þennan skít inn á heimilið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (90)