Molar um málfar og miðla 196

Af hverju þurfa umsjónarmenn Kastljóss RÚV  (10.11.2009) að misbjóða mörgum áhorfendum með því að   tala um að   bjóða  fólki á  fitness námskeið  þar sem  fólki er kennt að pósa rétt ? Molaskrifara fannst  þetta efni  lítið erindi eiga í Kastljós.  Umfjöllunin var um  það sem  ég leyfi mér að kalla sjúklega afskræmingu mannslíkamans  og notkun litarefna  til að  búa til gervibrúnku.

Úr Vefdv (09.11.2009): Foreldrar Helenar höfðu skilið fyrir nokkru en móðir hennar fékk loksins faðir hennar til að grafa hana. Enn er óskrifandi fólk að  skrifa fréttir í Vefdv. Röng beyging , vond þýðing. Og hvað segja menn um eftirfarandi fyrirsögn úr sama miðli sama dag: Blint stefnumót,sem karlmenn myndu deyja fyrir. DV er að gera ýmislegt gott, en málfarið á vefnum þeirra er oftar en ekki fyrir neðan allar hellur eins og tilgreind dæmi sanna.  


Í seinni fréttum RÚV sjónvarps (09.11.2009) var sagt frá bólusetningarhneyksli í Belgíu þar sem knattspyrnumenn höfðu verið flokkaðir sem forgangshópur. Svo sagði Ingólfur Bjarni: .... Þar sem knattspyrna telst ekki vera undirliggjandi sjúkdómur... Þetta fannst Molaskrifara gott. Setning kvöldsins. En þegar allt kemur til alls , þá er  knattspyrna sennilega undirliggjandi  sjúkdómur hjá allmörgum.
 
 Molaskrifari viðurkennir fúslega að hann er íhaldsmaður þegar kemur að málfari. Hann kann ekki að meta þegar Morgunblaðið segir (10.11.2009) í fjögurra dálka forsíðufyrirsögn: Tugmilljarða hækkanir á sköttum eru í pípunum. Hvað pípum ? Nú er þetta ekki ný frétt, hefur verið til umræðu um skeið. Það sem Molaskrifari kann ekki að meta er að talað sé um að eitthvað sé í pípunum, eitthvað sé yfirvofandi, eitthvað sé væntanlegt. Ekki vandað mál.
     

 

 

Annar umsjónarmanna  morgunútvarps Rásar tvö (10.11.2009) talaði um að bjóða á jólaborð. Af hverju ekki bjóða að jólaborði eða  til  jólaborðs, samanber að setjast til borðs ? Hinsvegar var gott hjá Gísla Kristjánssyni að tala um að álverksmiðjur og vopnasmiðjur í Noregi ætluðu að skjóta saman.. í merkingunni að leggja  sameiginlega fé til einhvers.
Ríkisútvarpið á annars að sjá sóma sinn í að breyta þessum morgunþætti Rásar tvö. Losa hlustendur  við bullið og aulaflissið.  


   Líklega hefur mörgum þótt skrítið að lesa í fréttum   formaður svokallaðrar Hreyfingar sem á eina þrjá fulltrúa á þingi væri búinn að ráða sér aðstoðarmann á kostnað skattborgaranna. Hreyfingin er fylgislaust og áhrifalaust fyrirbæri og óskiljanlegt er við hvað aðstoðarmaðurinn á að aðstoða formann þessa fámenna hóps.


   Fjölmiðlar túlka skoðanakönnun um stöðu forseta Íslands á ýmsan veg, hver eftir sínu höfði. Molaskrifari  er hinsvegar þeirrar skoðunar að staða forsetans sé ótrúlega sterk miðað við:
 

a)     Hann var aðalklappstýran í liði útrásarvíkinganna og notaði hvert tækifæri sem gafst til að mæra þá og vegsama.

b)    Hann hefur klúðrar hverju viðtalinu á fætur öðru við erlenda fjölmiðla, sem flestir hafa misskilið það sem þjóðhöfðingi vor vildi sagt hafa. Fræg varð orðasenna hjónanna í viðurvist erlends blaðamanns.


c)      Hann hefur farið mjög á  svig við sannleikann í sjónvarpi án þess að depla auga.

 Í ljósi alls þessa hlýtur  staða hans að teljast sterk.
  Hitt er svo annað mál að staða hans styrktist ekki við útgáfu lofrollunnar sem  gömlu bankabandittarnir borguðu fúlgur fjár fyrir að skrifuð yrði um hann, - líklega í þakklætisskyni.Ritdómarar gáfu bókinni falleinkunn  og þjóðin felldi sinn dóm með því að kaupa hana ekki.

 


Óskiljanleg linkind

Sá röggsami embættismaður, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu, Stefán Eiríksson, lét svo ummælt í fjölmiðlum um daginn, að heimilt væri að senda útlendinga, sem brotið hefðu íslensk lög, úr landi. Til síns heima. Auðvitað á að gera þetta.  Sagt var frá því  í fréttum í dag,  þriðjudaginn 10. nóvember, að fimm manna hópur útlendinga hefði látið greipar sópa um hús og heimili á Suðurlandi, stundað landabrugg og líklega fíkniefnasölu.  Hvervegna í ósköpunum á að sýna fólki linkind sem kemur hingað til lands gagngert í þeim tilgangi að brjótast inn á heimili okkar  og ræna og rupla? Auðvitað á að reka  slíkan óþjóðalýð úr landi. Umsvifalaust. Það er einhverskonar aumingjagæska á misskilningi byggð  að sýna þessu  fólki mildi. Þetta er harðsvíraður glæpalýður, sem á enga samúð skilið.  Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu hefur í þessu efni lög að mæla.

Bloggfærslur 10. nóvember 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband