Molar um matreiðsluþátt

  Matreiðsluþáttur Jóhönnu Vigdísar í kvöld (08.10.2009) var ágæt tilbreyting. í dagskránni,- yfirlætislaus og einfaldur að allri gerð. Dæmi um gott og ódýrt dagskrárefni. Jóhanna Vigdís skilaði sínu prýðilega.

 

Sem áhugamaður um eldamennsku vill Molaskrifari þó gera nokkrar athugasemdir,- vel meintar.

 

Hversvegna nota ýsu ? Ýsan er alls ekki besti matfiskurinn. Í gamla daga var það þó þannig í Reykjavík ef ekki var til ýsa í fiskbúðinni (þá voru nefnilega sérstakar fiskbúðir), sögðu reykvíkskar húsmæður: Hvað er þetta, er ekki til neinn fiskur ? Jóhanna Vigdís  sagði, að jafnvel mætti nota þorsk. Þorskur er besti matfiskur sem völ er á. Það er fátt sem jafnast á við rétt eldað þykkt hnakkastykki úr þorski.Nógu lítið eldað til að vera ekki hrátt en samt ekki fulleldað fyrr en á diskinum. Ýsan er hrææta. Þorskurinn étur rækjur,loðnu og seiði.Lifir á lostæti. Ég tek þorsk, steinbít, löngu, blálöngu, keilu og karfa , rauðsprettu og smálúðu fram yfir ýsuna. Hún kemur síðust í röðinni. Enda losnaði hún öll í sundur á pönnunni, þegar Jóhanna Vigdís var að elda hana. Annars efast ég ekki um að þetta hafi allt bragðast vel. Besta leiðin til að borða ýsu hefur mér eiginlega fundist að skera hana í þunnar sneiðar og  láta hana liggja hráa í hreinum sítrónusafa í ísskáp í sólarhring eða tvo.

 

 Gömul saga, sem  kona úr Garðinum sagði mér. Hún var sem krakki send niður í Rafnkelsstaðavör, Kópu, innstu vör í Garðinum,  til að kaupa í soðið, þegar afi minn, Guðjón Björnsson í Réttarholti ,var að koma að. Þetta hefur líklega verið á árunum 1945 til 1950. Afi minn spurði: Vill hún mamma þín ýsu eða vill hún fisk ? Með fiski átti hann auðvitað við þorsk. Þetta þótti mér skemmtileg saga.

 

 Annað nefni ég. Aldrei nota ég tómatsósu í marineringu eða til matargerðar. Til þess er hún allt of sæt og skemmir bragð. Nota ósætt tómatþykkni.  Bestu marineringarnar verða ævinlega til úr því sem af tilviljun er til í ísskápnum í þeim hlutföllum sem ímyndunaraflið blæs manni í brjóst. Undirstöðuefni hjá mér eru  góð ólífuolía og hlynsíróp.

 

Svo tek ég undir með Jóhönnu Vigdísi, - aldrei að henda afgöngum. Það lærði ég í æsku og það iðka ég enn. Ef hugmyndaflugið er virkt,  gefa afgangar óteljandi möguleika. Gott mál á krepputímum. Hlakka til að sjá næsta þátt. Legg til að Jóhanna sýni okkur hvernig hún eldar hrefnukjöt.

 

PS   Á upphafsárum sjónvarpsins gerði Molaskrifari þátt um sláturgerð. Hann er líklega týndur og verður því ekki (tröllum) sýndur. Hann var tekinn upp í skóla,sem mig minnir að þá hafi heitið Húsmæðrakennaraskóli Íslands og það var Margrét Kristinsdóttir skólastjóri,sem stjórnaði sláturgerðinni. Seinna gerðum við Margrét nokkra matreiðsluþætti þar sem hún eldaði í sjónvarpssal, Molaskrifari stjórnaði upptöku og snæddi  svo gómsætan afraksturinn með samstarfsmönnum að upptöku lokinni.Þá var veisla.  En þessir þættir eru líklega allir á öskuhaugum sjónvarpsins.  Það væri reyndar gaman að sjá þætti um gamlan „mömmumat" , ódýra , einfalda  og holla rétti.  Að safna slíkum uppskriftum væri verðugt  innlegg í menningarsöguna.

  

Molar um málfar og miðla CLXXI

Skemmtileg frétt hjá RÚV (08.10.2009) um sykurskreytingar rússnesk/íslenskrar konu sem voru sannkölluð listaverk. :Það bætti hinsvegar ekki fréttina að fréttamaður skyldi tala um tvö verðlaun. Þeir sem segja fréttir í þjóðarsjónvarpinu verða að kunna grundvallarreglur tungunnar. Verðlaun er fleirtöluorð. Þess vegna átti að segja: Tvenn verðlaun. (forseti lýðveldisins hefur reyndar flaskað á þessu sama) Verslanakeðjan Krónan auglýsir hinsvegar góð verð, þótt orðið verð sé ekki til í fleirtölu. Málvilltir menn  semja auglýsingar fyrir Krónuna.

 

Moggabloggari skrifari (08.10.2009): EES samningurinn er í engri hættu. Betra væri að dómi Molaskrifara að segja: EES samingurinn er ekki í hættu , eða EES samningurinn er ekki í neinni hættu. Smekksatriði? Líklega.

 

Það er heldur óviðkunnanlegt að hlusta á alþingismann segja (08.10.2009): Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn er ekki að henta okkur núna. Betra hefði verið: Okkur hentar ekki atbeini,eða aðstoð, Alþjóða gjaldeyrissjóðsins núna. Í íþróttafrétt á Vefdv segir (08.10.2009): Við erum ekki að spila vel í vörninni og ég er ekki að spila vel persónulega.Smitandi veiki þessi talsháttur.

 

Fréttablaðið birtir æ fleiri áhugaverðari greinar. Molaskrifari vitnar hér til tveggja greina úr Fréttablaðinu (08.10.2009). Þorvaldur Gylfason ,prófessor skrifar: Þjóðminjasafnið þyrfti að láta semja og senda út slíka spurningalista um gömlu spillinguna:forréttindi, frænddrægni,fyrirgreiðslu,klíkuskap, mútur, nápot og annað hefðhelgað svindl sem fólk ýmist þekkir sjálft af eigin raun eða man eftir öðrum leiðum. Vel sagt og snjöll hugmynd. Þarna eru orð sem vert er að vekja athygli á, - frænddrægni ( ekki frændrækni !) nápot og hefðhelgað svindl.

 

Hin tilvitnunin er úr grein eftir Njörð P. Njarðvík, rithöfund og prófessor emeritus. Njörður lýkur grein sinni með þessum orðum: Þjóðin stendur nú uppi skuldum vafin sakir afglapa fjárglæframanna og vanhæfni stjórnmálamanna. Árgalli hefur komið í siðu þeirra og manvit og meðferðir er gæta skulu stjórnar landsins - og óáran hefur orðið á fólkinu - eins og segir í Konungsskuggsjá. Þessi alvarlegi árgalli verður ekki leystur með lánum frá öðrum þjóðum. Þjóðin skuldar sjálfri sér endurskoðun á tilveru sinni og tilgangi. Sú skuld verður ekki greidd nema með endurheimtri siðferðisvitund. – Vel sagt og orð að sönnu.

 

Minningargreinarnar halda Molaskrifara enn við áskrift að Mogga.

 

Merkilegt má það heita að í norskum fjölmiðlum er betliferðar íslenskra Framsóknarmanna til Noregs hvergi getið, að því Molaskrifari best fær séð. Hennar er ekki einu sinni getið á heimasíðu norska Framsóknarflokksins og er þar þó viðtal við draumaprins Framsóknarmanna Per Olaf Lundteigen. Í hádegisfréttum RÚV (08.10. 2009) kom fram að íslensku Framsóknarmennirnir séu aðeins að kynna Norðmönnum efnahagsástandið á Íslandi, en alls ekki að biðja um lán eins og var yfirlýstur tilgangur ferðarinnar!  Svo kom reyndar fram í Spegli RÚV (08.10.2009) að Per Olaf Lundteigen hafði bara nefnt  2000 milljón króna lán , sem dæmi !  Hann meinti í rauninni ekkert með þessu. Framsóknarmenn misskildu þetta allt  frá upphafi og  flugu tvisvar til Noregs  fyrir tóman misskilning!  Málið allt er makalaust rugl.  Þetta er mikil frægðarför og  Framsókn til framdráttar!


Bloggfærslur 8. október 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband