26.10.2009 | 16:09
Molar um málfar og miðla 187
Úr Vefvísi (24.10.209): Betur fór en á horfðist þegar fólkbíll velti ofan í djúpan skurð á Suðurlandsvegi og hafnaði á hvolfi, Hverju velti fólksbíllinn? Velta ,velti,valt, ultum oltið.Hverju velti fólkbíllinn ofan í læk ? Hvað segja Molalesendur um eftirfarandi úr Vefmogga (2. 4.10.2009): Bandarískur karlmaður komst í kast við lögin á mánudag þegar hann hellti upp á kaffi heima hjá sér nakinn. Hann á von á því að verða kærður fyrir að afhjúpa sig með ósæmilegum hætti. Molaskrifari er vanur því að heyra talað um að hella upp á könnuna,eða hella upp á en ekki hella upp á kaffi.Og að afhjúpa sig með ósæmilegum hætti, er ekki gott mál. Á haustin er það einkum sjóbirtingur sem heillar stangveiðimanna... var sagt í hádegisfréttum RÚV ( (25.20.2009) Sögnina að heilla tekur ekki með sér eignarfall heldur þolfall. ... sjóbirtingurinn heillar stangveiðimenn. Enn ein aula villan í RÚV. Leikurinn verður spilaður í Frakklandi .. var sagt í íþróttafréttum RÚV. Af hverju ekki: Leikurinn fer fram í Frakklandi. Að spila leik, er ekki gott mál.Í háhegisfréttum RúV ( 25,10. var talað um um píanósnillinginn Glenn Gould, Sem ítreakað var kallaðir Glenn Gold. Þetta minnar á þegar þula sjónmvarpsins talaði hvað efiri anað um tónskáldið Richard WOOOgner.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)