Er ekki....

hægt að fá þá til að rannsaka  Seðlabanka Íslands líka?
mbl.is Auknar líkur á breskri rannsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Molar um málfar og miðla 179

Glöggur hlustandi gerði athugasemdir við málfar íþróttafréttamanna, sem oft niðra lið sem tapa með orðalagi eins að liðið hafi verið svínburstað eða niðurlægt ef munurinn á frammistöðu liðanna er mikill. Ekki er þetta hinn sanni íþrótttaandi , sagði þessi vinur minn. Það er hárrétt. Það er nóg að segja að lið hafi sigrað, unnið tapað eða beðið lægri hlut eftir atvikum.

Nýlega heyrði Molaskrifari  sagt í íþróttafréttum RÚV að deildin hefði byrjað. Þetta er málleysa. Ekki kann Molaskrifari heldur við það þegar talað er um að gera stig.  Amböguflóði íþróttafréttamanns RÚV í fréttum í kvöld (18.10.2009) verða  gerð skil hér síðar.

 

Það er verið að skrökva að hlustendum þegar Útvarp Saga segist vera að gera eða hafa gert skoðanakannanir.  Það er hárrétt sem Guðmundur Ólafsson hagfræðingur benti nýlega á (16.10.2009)  í þætti í Útvarpi Sögu þá er það sem stjórnendur stöðvarinnar kalla skoðanakannanir, bara samkvæmisleikir. Þessi orðnotkun er því bull.

 

Í Bændablaðinu (08.10.2009) segir: ... og var þessum viðburði gerð góð skil í 15. tölublaði Bændablaðsins. Skil er fleirtöluorð. Þessvegna ætti að standa: .... og voru þessum viðburði gerð góð skil...

 

Úr Vefvísi (16.10.2009). Dómsmálaráðuneytinu barst framsalsgögn frá brasilískum stjórnvöldum vegna Hosmany í byrjun september. Gögn er fleirtöluorð.. Þarna ætti því að standa: Dómsmálaráðuneytinu bárust framsalsgögn frá.

 

Bíll fór út af veginum á Reykjanesbraut var sagt í tíu fréttum RÚV (16.10.2009). Fór ekki bíllinn útaf Reykjanesbraut? Er vegur á Reykjanesbraut ? Vinur minn, gamall vestur íslenskur  um nírætt   sagði við mig  er við vorum á  ferð í  Norður Dakota og ókum af malbikuðum vegi inn á  malarveg:  Nú  förum við inn á  mölbraut,. Það  þótti mér gott.

 

Óskiljanleg setning var í hádegisfréttum RÚV (16.10.2009) um  könnun (alvöru) Fréttablaðsins á fylgi stjórnmálaflokka. Þá sagði einn besti og reyndast fréttaþulur RÚV: Formaður Samfylkingar og Framsóknarflokks stendur nánast í stað. Þarna hefur átt að segja fylgi, en ekki formaður. Það er hættulegt, þegar þulir óvart hætta að að hlusta á það sem þeir eru að lesa. Molaskrifari veit af eigin reynslu að auðvelt er að falla í þá gryfju.

 

Í fréttum RÚV sjónvarps (16.09.2009) var talað um enn brýnari þörf. Orðmyndin brýnari er ekki til íslensku máli. Þarna átti fréttamaður að segja : ...enn brýnni þörf. Kannski má reyndar kalla þann sem hefur atvinnu af því að brýna hnífa og skæri brýnara!

 

Við munum áfrýja þessum dóm, sagði lögmaður, sem hefur á lag á að komast oft í fjölmiðla, í fréttum Stöðvar tvö (16.10.2009). Hann var að fjalla um dóm yfir handrukkara og ofbeldismanni sem var skjólstæðingur hans. Handrukkarinn hafði lamið mann í klessu .Árásin var mynduðog sýnd í sjónvarpi. Lögmaðurinn hefði átt að segja: Við munum áfrýja þessum dómi. Dómur,dóm,dómi,dóms. Skrítið að lögmaður skuli ekki ráða við að beygja þetta orð.

 

Nokkrir lesendur þessara Mola hafa orðað það að betra væri að nota ekki rómverskar tölur um Molaröðina heldur  þær tölur sem við erum vönust, þ.e. arabískar. Svo verður framvegis.


Óviðunandi ?????

  Það er nákvæmlega sama  hver niðurstaða þessa máls   hefði orðið Bjarni og  Sigmundur   hefðu alltaf talið hana óviðunandi.  Flokkar þeirra  bera  þó öllum öðrum meiri ábyrgð á því hvernig komið er fyrir  þjóðinni. Upphaf málsins var þegar  flokkar þeirra gáfu  vinum sínum  ríkisbankana. Þar eru ræturnar.  Það þarf  karlmennsku og kjark  til að  ljúka þessu máli. Vonandi  hefur  stjórnarliðið það. Lýðskrumið og ábyrgðarleysið hjá  forystu  Sjálfstæðisflokks og  Framsóknarflokks  mun halda  áfram. Vita þessir  menn ekki að  þeir eru að misbjóða þúsundum sinna  eigin flokksmanna með þessari  framkomu ? Það þarf ekki að tala  við neinn fjölda  til að komast að því.
mbl.is Óviðunandi niðurstaða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 18. október 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband