Molar um málfar og miđla CLXXIV

  Vinsamleg ábending til fréttastofu RÚV: Togbátur er ekki dráttarbátur eins og sagt var í hádegisfréttum (12.10.2009). Togbátur er fiskiskip,sem veiđir međ botnvörpu, sem skipiđ dregur eđa togar á eftir sér. Togbátur, eđa trollbátur eins og áđur var sagt ,er minni en togari.. Dráttarbátur er skip sem er hannađ til ţess ađ draga önnur skip eđa pramma. Dráttarbátur getur tekiđ skip í tog, en viđ ţađ verđur hann ekki togbátur. Skipiđ eđa báturinn var sagt í eigu Polar Seafood, sem ekki er líklegt ađ geri út dráttarbáta , eftir nafni fyrirtćkisins ađ dćma. Fréttaskrifari sem  heldur ađ togbátur sé dráttarbátur ćtti ađ einbeita sér ađ skrifum um efni sem ekki snerta skip og sjómennsku. Fréttastofa RÚV hefur ekki efni á ţví ađ verđa ađ athlćgi.

                                                                                                                    

Amböguflóran í fréttum Stöđvar tvö var óvenju auđug á sunnudagskvöldiđ (11.010.2009). Nokkur dćmi (ambögurnar voru fleiri): .. geti átt von á málsókn vegna setningu neyđarlaga. Ćtti ađ vera vegna setningar neyđarlaga. ... sprengjuvesti,sem minnstu munađi ađ hann náđi ađ sprengja. Ćtti ađ vera nćđi ađ sprengja. Tveir hópar lentu saman. Ćtti ađ vera: Tveimur hópum lenti saman. Voru viđvaningar á vaktinni sem ekki voru ţeim vanda vaxnir ađ semja óbrenglađa texta ?

 

Í fasteignaauglýsingum Fréttablađsins er heldur aulaleg auglýsing: Heimili fasteignasala hefur í einkasölu  rúmlega 200 fermetra sérhćđ... Ţetta hljómar eins og heimili fasteignasala  sé ađ selja sérhćđ. Eđlilegra orđalag vćri: Fasteignasalan Heimili er međ 200 fermetra sérhćđ í einkasölu..

 

Nú er Morgunblađiđ fariđ ađ blanda saman pólitík og fréttum í ţeim mćli sem ekki hefur sést síđan gamli Ţjóđviljinn, málgagn íslenskra kommúnista var á dögum. Kannski er Morgunblađiđ ađ breytast í einhverskonar blöndu af bandarísku sjónvarpsstöđinni FOX og gamla Ţjóđviljanum, blöndu  sem er krydduđ međ keimi af AMX og ÍNN. Ţađ er heldur bragđvond blanda.

  

Einföld leit á norskum vefmiđlum leiđir í ljós ađ lítiđ sem ekkert  hefur veriđ fjallađ um fýluferđ Framsóknarmanna til Noregs. Formađur Framsóknar skrökvađi ţví blákalt ađ hlustendum í hádegisdfréttum RÚV (12.10.2009) ađ ítarlega hefđi veriđ fjallađ um bréfaskipti forsćtisráđherranna í norskum fjölmiđlum. Ţađ er ósatt og ekki ţađ eina sem var ósatt í ţví sem Sigmundur Davíđ Gunnlaugsson sagđi.

Norski fréttavefurinn ABC nyheter virđist ekki vera vandari ađ virđinginu sinni en Framsóknarferđamennirnir. Á vefnum er (12.10.2009) snúiđ út úr bréfaskiptum forsćtisráđherra Íslands og Noregs. Svo segir ţar ađ Íslendingar vilji lán frá Noregi og er vísađ á fréttaavef norska  ríkisútvarpsins NRK og sagt : De fleste islendingene řnsker lĺn fra Norge, melder NRK.no  en sé fariđ á fréttavef NRK sést ađ veriđ er ađ vitna í skođanakönnum ţar sem í ljós kemur  ađ margir Íslendingar vilja ađ Norđmenn fjárfesti á Íslandi. Ţar er ekkert talađ um lán. Á vef norska Ríkisútvarpsins segir: I den sammenheng viser undersřkelsen at det er et tydelig řnske med investorer fra Norge. Blant islendinger flest topper et řnske om investorer fra Skandinavia, og i tillegg til at et řnske om investorerer fra Skandinavia innebćrer investorer fra Norge, er det mange som spesifikt trekker fram Norge.

Mye av den samme holdningen finner vi blant nćringslivsledere pĺ Island.

Pĺ et eget spřrsmĺl om islendingene er for eller mot norske investeringer pĺ Island, svarer 50% av isledninger flest at de er sterkt for mens 58% av nćringslivsledere har denne meningen.

Ţetta er undarleg fréttamennska ađ ekki sé fastar ađ orđiđ kveđiđ. Ţetta er eiginlega fréttafölsun. En í rauninni er hún á sama stigi og frásögn Framsóknarmannanna af Noregsferđinni sem nú er ađ endemum frćg..

  

Bloggfćrslur 12. október 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband