Molar um málfar og miðla CLXXIII

Það var gaman að sjá og heyra Karlakór Reykjavíkur syngja í Alþingishúsinu í lok RÚV sjónvarpsfrétta (10.10.2009).Flottur endir á fréttatíma á laugardagskvöldi. En það var subbulegt í meira lagi að klippa á söng kórsins í miðri tónhendingu og skella auglýsingastefinu inn á fullum hljóðstyrk. Annaðhvort hefði átt að deyfa sönginn niður eða klippa á hljóðið milli tónhendinga.. Að hlusta á svona er eins að fá spark í hausinn frá sjónvarpstækinu. Reyndar ekki í fyrsta skipti,sem  svona  er farið að í Efstaleitinu.

 Úr Vefdv (10.10.2009): ...þegar ritstjórnarstefna Séð & Heyrt bar á góma. Hér ætti að standa:.. þegar ritstjórnarstefnu Séð & Heyrt bar á góma. Meira úr sama miðli. Fyrirsögnin: Orkuveitan ósátt með Svandísi. Ósátt við Svandísi væri eðlilegra orðalag. 

 Í sjónvarpsfréttum RÚV (10.10.2009) var talað um þakplötur sem tóku á loft. Betra hefði verið að segja að þakplöturnar hefðu fokið eða tekist á loft.  Í tíu fréttum RÚV á laugardagskvöld (10.10.2009) gat Molaskrifari ekki heyrt að væri ein einasta ný frétt. Frábær þjónusta þjóðarútvarpsins við eigendur sína. Kannski var þó eitthvað nýtt í íþróttafréttum. 

Eins og nefnt var í síðustu Molum sagði RÚV í fréttum, oftar en einu sinni, að norski Framsóknarþingmaðurinn Per Olaf Lundteigen væri forseti norska Stórþingsins. Það er auðvitað kolrangt. Hann er ekki einu sinni einn af fimm varaforsetum Stórþingsins. Molaskrifari er löngu hættur að senda fréttastofu RÚV það sem hann kallaði í tölvubréfum vinsamlegar ábendingar um það sem er missagt var eða ambögur í fréttum. Slíku var nær aldrei svarað og Molaskrifari fékk á  tilfinninguna, að í Efstaleiti þætti þetta  nöldur og afskiptasemi.

Molaskrifari hefur áður vikið að því öðrum vettvangi að  Gróa á Leiti  virðist vera farin að hafa áhrif á fréttaskrif Morgunblaðsins.  Það sést á því að fréttir hefjast á orðunum: Heyrst hefur.... Ólyginn sagði mér, gæti allt eins staðið þar.

 Í Staksteinum Morgunblaðsins (11.10.200)) er eftirfarandi klausa: Ótrúlegustu menn eru sjálfskipaðir siðvæðingarmenn fagiðnaðarins. Jafnvel menn sem voru aldir upp í aftursætinu á ráðherrabílum og nutu síðar óverðskuldaðra launalegra fríðinda af þeim sökum og fella síðar meir dóma á báðar hendur undir þeim formerkjum.    

Þetta er í fyrsta lagi  klúðurslega skrifað. Í öðru lagi er þetta dylgjublaðamennska og í þriðja lagi er hér í skjóli nafnleysis og hugleysis vegið úrlaunsátri að einhverjum einstaklingi, sem Molaskrifari hefur reyndar ekki hugmynd um hver er. Þegar sem mest gekk á í borgarstjórn Reykjavíkur dundu svívirðingar Staksteina á andstæðingum Sjálfstæðisflokksins, en þeir voru þó nafngreindir. Hér er  dylgjað í skjóli nafnleysis. Svona skrif er ekki hægt að skilgreina öðruvísi en sóðaskap. Ritsóðaskap. Er Morgunblaðið að breytast í götublað meðan DV er á uppleið?   

 

 

Aðeins um annað. Varð hugsað til þess að oftast er talað um fjarstýringar þegar rætt er um þráðlaus stjórntæki fyrir raftæki.. Á mínu heimili er fjarstýringin aldrei kölluð annað breytingin!


Bloggfærslur 11. október 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband