Hversvegna?

Sjónvarpið er duglegt að sýna beint  frá margháttuðum íþróttaviðburðum, boltaleikjum og bílaleikjum. Tilkynnt er ,að nótt eða undir morgun  verði bein útsending frá  bílaleik fullorðinna úti í  heimi. Þegar sportið á í hlut er ekkert sparað, nægur  tími og  nógir peningar.

Hversvegna getur Sjónvarp allra landsmanna ekki sýnt okkur beint frá þeim einstæða  tónlistarviðburði, þegar Víkingur Heiðar Ólafsson leikur  þriðja píanókonsert  Rachmaninoffs með Sinfóníuhljómsveit Íslands  í Háskólabíói í kvöld ?

Á því hlýtur að vera haldbær skýring. Gaman  væri að heyra hana.


Bloggfærslur 28. september 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband