Danskir fossar !

Í fréttayfirliti danska  sjónvarpsins í gær voru  fossar Ólaf Elíassonar  kynntir   sem: "Danske  vandfald i USA". Það var og ! 
mbl.is Fossar falla í Austurá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Of margir ...?

"Of margir  fljúga fullir".  Er þá í lagi  að  tiltölulega  fáir fljúgi fullir ?


mbl.is Of margir fljúga fullir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Er að valda"

Á þessum  stað var fyrir nokkru vikið að hinni nýju nafnháttarsýki,sem  nú verður æ algengari  og breiðist  raunar út eins og eldur í sinu.

Í hádegisfréttum  RÚV var í dag  rætt  við  hagfræðing  hjá Glitni. Í örstuttu  viðtali sagði  hagfræðingurinn tvisvar sinnum  "er að valda" og  tvisvar sinnum "höfum verið að sjá". Hversvegna ekki "veldur" og  "höfum séð". Einfaldara, réttara og fallegra.

Það væri  góð  fjárfesting  fyrir stórfyrirtæki eins og bankana  að  kenna  starfsfóilki sínu að  tjá  sig   skammlaust á íslensku. Það  væri líka  traustvekjandi.

Það  var  svo ekki upplífgandi í kvöldfréttum  Ríkissjónvarpsins að heyra  framhaldsskólakennara  tala um "þrjú kennaralaun".


"Ekki frétt" Sjónvarpsins

Sérkennileg "frétt" var í seinni fréttatíma Ríkissjónvarpsins í  gærkveldi. Þar  voru birt  viðtöl  við  tvo starfsmenn  Veðurstofu Íslands  um það hvort  hafíseftirlit  Veðurstofunnar væri nægilega gott. Horfendur/hlustendur  voru  engu nær  eftir viðtölin. Stutt er  síðan  fréttastofa   Ríkissjónvarpsins  varði miklum  tíma í  að  fjalla um meint  einelti á Veðurstofunni.

Nú er  spurt: Lítur  fréttastofa   Ríkissjónvarpsins á það sem sérstakt  hlutverk  sitt að  viðra   fyrir landsmönnum  ímyndaðar eða  raunverulegar  innanhússerjur á  Veðurstofunni ?

Hvað er á  seyði í Efstaleitinu ? 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband