4.4.2016 | 07:11
Molar um málfar og miðla 1919
ÞRUMU LOSTIN ÞJÓÐ
Eftir Kastljós gærkvöldsins er þjóðin þrumu lostin. Forsætisráðherra á engan kost annan en að segja af sér. Forsætisráðherra Íslands og frú voru í gærkvöldi fréttaefni heimsmiðlanna, svona milli Pútíns og forseta Úkraínu . Það var þá líka landkynningin!
Morgunblaðið býsnast næstum yfir að Jóhannes Kr. Kristjánsson hafi fengið 1,5 milljónir fyrir sína vinnu við þennan sjónvarpsþátt. Það eru smámunir, - kannski átta til tíu vikna laun góðs blaðamanns á Mogga , -eða hálfsmánaðar ritstjóralaun, nær því þó sjálfsagt ekki.
Var ekki Jóhannes Kr. látinn fara frá Kastljósi Ríkisútvarpsins vegna þess að ekki var til fé að greiða honum laun? Man ekki betur.
Jóhannes Kr. og allir sem unnu að þessu verkefni eiga mikinn heiður skilinn. Þetta var afrek. Í rauninni voru þetta mikilvæg þáttaskil í íslenskri fjölmiðlun og rannsóknablaðamennsku.
Við erum ekki aðeins þrumu lostin þjóð, heldur ekki síður í augum okkar sjálfra og umheimsins ,, hnípin þjóð í vanda eins og þjóðskáldið orðaði það.
.....
ENN UM VIÐTENGINGARHÁTT OG FLEIRA
Molavin skrifaði (02.04.2016):,,Það er leitt að þurfa að endurtaka ávirðingar á fréttastofu Ríkisútvarpsins. En kannski er rétt að nefna bara nöfn, því þar virðist ekki tekið við almennum leiðbeiningum. Fyrirsögn fréttar (01.04.2016) á vefsíðu RUV segir: "Ferðamennskan ræni komandi kynslóðir landinu" og fréttina skrifar Kristín Sigurðardóttir. Þessi fyrirsögn er skrifuð í viðtengingarhætti, þótt viðmælandinn, landgræðslustjóri, tali í framsöguhætti. En viðtengingarhátturinn breytir merkingu orða hans. Þannig hljómar þetta eins og ákall til ferðaþjónstunnar um að ræna landinu frá komandi kynslóðum. Anna Sigríður Þráinsdóttir er málfarsráðunautur og ætti að hafa tekið á þessum vaxandi vanda fyrir löngur. En megin ábyrgðina ber Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri. Molavin bætir við:,, Í framhaldi af þessu: Reyndur fréttamaður ríkisútvarpsins, Ævar Örn Jósepsson skrifar frétt um bíl Frans Páfa og segir (02.04.2016) "Fíat Frans páfa seldur fyrir metfé." Orðið metfé þýðir ekki há upphæð heldur dýrgripur. Orðið kemur ekki fyrir í fréttinni, aðeins fyrirsögn á vefsíðunni, svo kannski er Ævar Örn saklaus. Molaskrifari þakkar Molavinbréfið og þarfar ábendingar,sem sumar hafa hér verið nefndar áður. Molaskrifari gerir ekki mikið af því að nefna nöfn einstakra fréttamanna, og enn minna af því að breyta bréfum sem vinir Molanna skrifa.
EKKERT SVAR
Hér hefur stundum verið vikið að því hve auðveldlega stjórnmálamenn víkjast átölulaust undan því að svara spurningum fréttamanna í ljósvakaviðtölum. Spurningum er ekki fylgt eftir og maður fær á tilfinninguna að spyrillinn hafi alls ekki verið að hlusta á þann sem spurður var. Kannski verið með hugann við næstu spurningu.
Dæmi um þetta mátti sjá og heyra í upphafi Kastljóss á fimmtudagskvöld (31.03.2016). Vigdís Hauksdóttir alþingismaður, formaður fjárlaganefndar, var spurð um væntanlegt frumvarp Framsóknarmanna um að aflétta leynd af gögnunum um bankamál,einkum það sem fellur undir svo kallaða ,,110 ára reglusem virðist svo alls ekki vera til! Spyrill sagði efnislega: - Það liggur fyrir að í þessum gögnum, sem verið er að vísa í að það eru innanum upplýsingar um einkahagsmuni,en samkvæmt lögum er opinberum aðilum óheimilt að veita aðgang að þannig upplýsingum. Hvernig takið þið á því í þessu frumvarpi? Viljið þið að öll þessi gögn verði opinberuð eða viljið þið undanskilja hluta þeirra?
Skemmst er frá því að segja, að formaður fjárlaganefndar flutti fyrirfram saminn ræðustúf, en kom ekki nálægt því að svara því, sem um var spurt. Spurningunni var ekki fylgt eftir ekki beðið um svar, þegar ljóst var, að þingmaðurinn hafði ekki einu sinni reynt að svara spurningunni. Við sem heima sátum vorum þess vegna engu nær.
ENGIN REISN
Rétt fyrir kvöldfréttir á föstudagskvöld (01.04.2016) var flutt í Ríkisútvarpinu súkkulaðiauglýsing, sem var að mestu leyti á ensku. Þetta stríðir gegn reglum Ríkisútvarpsins.
Skeytir auglýsingadeild Ríkisútvarpsins hvorki um skömm né heiður?
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.4.2016 | 10:02
Molar um málfar og miðla 1918
ÚR FRÉTTUM
V.H. skrifaði Molum eftirfarandi (29.03.2016): ,, Um páska var haldin tónlistahátíðin ,,Aldrei fór ég suður´´ og alltaf er fréttakona kom á skjáinn þá kom texti að hún talaði frá Vestfjörðum .. þegar hún talaði bara frá Ísafirði .. nóg að vera bara í einum firði í einu. Ekki satt ?
Lögreglan handtók mann sem hafði í sínum fórum heimagerð lögregluskilríki ... heitir það ekki bara fölsuð skilríki ?
Útikofi á Selfossi brann til kaldra kola ... útikofi! .. er þá til líka innikofi? Er ekki nóg að hafa bara kofa ?
Barn var afhöfðað í Asíu .. afhöfðað ? til er gamalt og gott orð yfir þetta athæfi hálshöggva.
Molaskrifari þakkar V.H. bréfið. Bætir við að orðið afhöfðað er augljós aulaþýðing úr ensku, beheaded. Allt eru þetta réttmætar athugasemdir. Vonandi komast þær til skila, - til þeirra sem þetta hafa skrifað.
ENN EIN ...
Enn ein dellufyrirsögnin af fréttavef Ríkisútvarpsins (31.03.2017): 27 milljón fiskar drepist í Chile. Lagt er til að málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins kenni fréttamönnum, sem ekki ráða við það að nota viðtengingarhátt, hvernig nota skuli viðtengingarhátt. Þetta hefur raunar oft verið nefnt í Molum.
http://www.ruv.is/frett/27-milljon-fiskar-drepist-i-chile
UM FALLAVILLU
Rafn skrifaði (30.03.2016):,, Sæll Eiður
Klausan hér fyrir neðan var í mola nr. 1916. Hefði ekki verið rétt að snúa þessu alla leið á íslenzku og segja:
,,Sigmundur Davíð Gunnlaugsson telur að sér hafi ekki borið nein skylda til að Rétt athugað , Rafn. Þakka bréfið. Í Molum stóð:
,,FALLAVILLAÍ fréttayfirliti Bylgjunnar á skírdag (24.03.2016) var sagt: ,,Sigmundur Davíð Gunnlaugsson telur að hann hafi ekki borið nein skylda til að Enginn les yfir. Ekki frekar en venjulega. Ekki frekar en annarsstaðar. Honum hafi ekki borið nein skylda til .
Þakka bréfið, Rafn.
EKKI NÁKVÆMT
Í lítilli frétt á forsíðu Morgunblaðsins í dag (01.04.2016) segir: ,,Ekki ríkir 110 ára leynd yfir skjölunum um uppgjör gömlu bankanna,sem alþingismenn hafa fengið að skoða trúnaði, eins og hefur mátt skilja af fréttum. Þetta hefur einkum mátt skilja af Framsóknarmönnum, - ekki fréttum almennt. Þetta tal um 110 ára leynd var rauði þráðurinn í ræðum Vigdísar Hauksdóttur, framsóknarþingmannsins,sem er formaður fjárlaga nefndar í Kastljósi í gærkvöldi. Þjóðskjalavörður lýsti svo yfir ,að þessi regla væri ekki til.
TIL LESENDA
Þeir lesendur, sem vilja senda mér tölvupóst eru beðnir að nota póstfangið eidurgudnason@gmail.com .Eða einkaskilaboð á fésbók.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)