Molar um málfar og miðla 1624

Molaskrifara var svolítið brugðið er hann hlustaði á upphaf kvöldfrétta Ríkisútvarpsins í gærkvöldi (27.11.2014) en í upphafi fréttatímans var sagt: Uppþot varð á Alþingi í dag .... Fyrst hvarflaði að honum að til slagsmála hefði komið í þingsal, enda skilur hann orðið uppþot með sama hætti og orðabókin; óeirðir, upphlaup. Svo kom í ljós að komið hafði til snarpra orðaskipta. Það var nú allt og sumt. Hófstilltara orðalag var í sjónvarpsfréttum seinna um kvöldið, en þar var talað um fjaðrafok.

 

Svo smám saman feidast þetta út, sagði umsjónarmaður Morgunútgáfu í Ríkisútvarpinu (26.11.2014). Hvimleiðar slettur í þessum þætti. Svo minnkar þetta smám saman, svo hverfur þetta smám saman. Í sama þætti var talað um að hindra óeirðir. Betra hefði líklega verið að tala um að koma í veg fyrir óeirðir. En það er kannski sérviska Molaskrifara.

 

Í þessum sama þætti var rætt við vin Molaskrifara í Færeyjum, Baldvin Þór Harðarson, sem sagði frá því að um leið og olíuverð lækkaði á heimsmarkaði lækkaði verð eldsneytis á bensínstöðvum í Færeyjum. Á Íslandi þekkjum við það að verðið hækkar hér um leið og heimsmarkaðsverð á olíu hækkar, en lækkanir skila sér ekki jafn fljótt til neytenda. Hin samræmdu íslensku olíufélög lækka verðið í nákvæmum takti fyrirvaralaust 2-3 sinnum í mánuði. Það stendur í einn dag. Svo samtaka eru þessi samræmdu félög að oftast líða aðeins nokkrar mínútur milli tilkynninga frá þeim um afslátt, verðlækkun. Þessi afsláttur er ekki í neinum tengslum við heimsmarkaðsverð á olíu , en fer stundum eftir velgengni íslenska liða í boltaleikjum erlendis. Samræmdu olíusalarnir á Íslandi hafa okkur neytendur að fíflum.

 

Af mbl.is (26.11.2014): Þess fyr­ir utan var nokkuð ósam­ræmi á milli framb­urða. Ekki er þetta nú tiltakanlega vel orðað. Hér hefði til dæmis mátt segja: Þar að auki var misræmi í framburði vitna. http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/11/26/setti_byssuna_sjalfur_i_poka/

 

Úr fréttum Ríkissjónvarps (26.11.2014): ,,Á föstudaginn var greint frá því að Landhelgisgæslan og norski herinn hafi komist að samkomulagi um að vopn, sem bárust hingað til lands frá Norðmönnum, verði skilað”. Vopn verður ekki skilað. Vopnum verður skilað. Í sama fréttatíma var sagt frá óeirðum í Bandaríkjunum og heyrði Molaskrifari ekki betur en tekið væri svo til orða: ,,Í Minneapolis varð fólk heitt í hamsi, þegar akstursleiðum var lokað”. Fólki varð heitt í hamsi, fólk var í uppnámi og var ekki verið að loka götum ? Akstursleiðum?

 

Haldið var áfram að babla ensku við Færeyinga í Ríkissjónvarpinu í gærkvöldi (27.11.2014). Í lokin var okkur sagt, að í næsta þætti færu strákarnir í gangnaferð. Hvað er gangnaferð?

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG

 


Molar um málfar og miðla 1623

 

Málglöggur Molalesandi benti á eftirfarandi frétt á visir. is (24.11.2014).

http://www.visir.is/hardur-arekstur-a-akureyri/article/2014141129488

Í fréttinni segir: ,,Engir farþegar voru í bílunum og var þeim ekið úr andspænis áttum. Báðir voru því á grænu ljósi, en þó lentu bílarnir saman.” Ja, hérna. Úr andspænis áttum !

 

Annar lesandi benti á þetta, sem einnig er af visir.is (23.11.2014) http://www.visir.is/article/20141123/FRETTIR01/141129645

,,Kokklandsliðið býður upp á þorsk og lambamjöðm”! Hann bætir við ef til vill séu litlir bógar með mjaðmahnykk í landsliðinu. En fóru þeir ekki með sigur af hólmi? Molaskrifari man ekki betur. Miklir bógar í matargerð, hvað sem öðru líður..

 

Molaskrifari skorar á Ríkissjónvarpið að fá til sýningar tónleikana sem sýndir voru sl. sunnudagskvöld (23.11.2014) í Hovedscenen á NRK2. Þar söng Jonas Kaufmann með sinfóníuhljómsveit útvarpsins í Berlín lög úr ýmsum óperettum. Dásamlegur söngur og frjálsleg framkoma. Með Jonasi söng í lokin sópransöngkonan Julia Kleiter. Þetta var svo sannarlega góð skemmtun.

 

Þetta er úr frétt um breytingar við Borgartún í Reykjavík af visir.is (25.11.2014) http://www.visir.is/aetlad-ad-styrkja-gotumynd-borgartuns/article/2014141129351:

,, Bílastæði og fyrirkomulag verða í samræmi við borgarmiðað gatnakerfi og heildstæða götumynd en Borgartún hefur tekið miklum breytingum á síðustu árum ...” Veit einhver Molalesandi hvað  borgarmiðað gatnakerfi er ? Molaskrifari veit það ekki og finnst þetta vera innihaldslaust orðagjálfur. Sandkassastjórar skipulags höfuðborgarinnar hafa gert breytingar til að torvelda umferð bíla um Borgartún. Það hefur tekist nokkuð vel. Sérstakir hjólreiðastígar hafa verið gerðir, en margir hjólreiðamenn kjósa fremur að hjóla á gangstígunum sem ætlaðar eru gangandi vegfarendum. Þessar breytingar hafa sennilega kostað milljónatug eða tvo. Lærðu menn ekkert af Hofsvallagötuvitleysunni? Greinilega ekki.

 

Í Kastljósi (255.11.2014) var fjallað um Stætó bs. Ótrúlegt hvað stjórnendur opinberra fyrirtækja telja sig geta komist upp með. DV stakk á kýlinu. Plús fyrir það. Helgi Seljan spurði stjórnarformann Strætó bs. hvort fyrirtækið bæri kostnað af því að skilað var aftur 10 milljón króna Benzjeppa, sem forstjórinn keypti í leyfisleysi. Þeirri spurningu var ekki svarað. Og ekki gengið eftir svari. Helgi Seljan, bjargaði sér annars með ágætum þegar verið var að lagfæra hljóðnema í beinni útsendingu sem ekki skilaði sínu! Enda vanur maður. – Fyrri hluti Kastljóssins átti ekki augljóst erindi í ,,beittan fréttaskýringaþátt” að mati Molaskrifara.

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG

 

 


Molar um málfar og miðla 1622

 

Gaman að beinni útsendingu frá Færeyjum á Rás eitt á laugardagskvöld (22.11.2014), þótt upphafið væri slitrótt ,þegar tæknin brást. Bein útsending var svo að nýju frá Færeyjum í Morgunútgáfunni á mánudag (24.11.2014). Þar var til fyrirmyndar að tala við Færeyinga á íslensku, ekki babla ensku eins og gert er í Flandraþáttunum Ríkissjónvarpinu.

Á sínum tíma, þegar Molaskrifari starfaði í tæp tvö ár í Færeyjum, reyndi hann að vekja áhuga stjórnenda Ríkisútvarpsins á auknu samstarfi við Færeyinga í útvarps- og sjónvarpsmálum. Það tókst ekki. Áhuga skorti hjá yfirstjórninni í Efstaleiti. Nægur áhugi var í Færeyjum. Vonandi er áhugi Ríkisútvarpsins á grönnum okkar nú að vakna. Bogi Ágústsson er sá fréttamaður, sem helst hefur haldið merki Færeyja á lofti í Ríkisútvarpinu.

- Tvisvar sinnum var farið rangt með nöfn í þættinum á mánudag. Þar skorti á vandvirkni. Stjórnendur þurfa að venja sig af slettum. (ideal fyrir fiskeldi, standard Færeyingur). Eftir nokkuð langa Færeyjadvöl veit Molaskrifari ekki hvað standard Færeyingur er. Svo var okkur sagt að skítaveður hefði verið í Færeyjum á sunnudeginum. Molaskrifari upplifði aldrei skítaveður í Færeyjum. Það gat verið hvasst. Það gat rignt. Það gat verið slagveður, - ekki skítaveður.

 

Áður en ferðinni verður haldið til Ítalíu var sagt í íþróttafréttum Ríkisútvarps í hádeginu á mánudag (24.11.2014). Áður en haldið verður til Ítalíu. Sami íþróttafréttamaður sagði okkur frá knattspyrnumanni sem lagði skónna á hilluna. Lagði skóna á hilluna.

 

Í fréttum Stöðvar tvö (23.11.2014) var talað um að bora fyrir grunnvatni. Hefði ekki verið eðlilegra að tala um að bora eftir grunnvatni?

 

Hver nemandi er þá að leysa prófin á eigin forsendum, sagði forstöðumaður Námsmatsstofnunar í fréttum Ríkissjónvarps (24.11.2014) . Molaskrifari játar að hann skildi þetta ekki.

 

Hestur sigrast á vatnshræðslu á mjög krúttlegan hátt, segir í fyrirsögn á mbl.is (25.11.2014). ???? http://www.mbl.is/folk/frettir/2014/11/25/hestur_sigrast_a_vatnshraedslu_a_mjog_kruttlegan_ha/

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG

 


Molar um málfar og miðla 1621

 

Fyrrverandi starfsfélagi úr blaðamennskunni skrifaði (23.11.2014): ,, ,,Frakk­ar eru nú þegar með níu herþotur staðsett­ar í Sam­einuðu ar­ab­ísku fursta­dæmun­um”. Þessi málsgrein er af Mbl.is í dag. Þarna er orðinu staðsettar algerlega ofaukið. Því færri orð því betri stíll í fréttum. Þetta var verið að reyna að kenna okkur ásamt öðru af málfarsráðunautum hér á árum áður. Ég hef áður minnst á orðskrípið meðlimur. Fleira má telja og verður gert síðar.”  Molaskrifari þakkar gott bréf.

 

Molavin skrifaði (22.11.2014): "Forsetinn tilkynnti aðgerðaráætlun sína í nótt..." sagði í sjónvarpsfrétt RUV (21.11.2014) um sjónvarpsávarp forseta Bandaríkjanna kvöldið áður. Það er villandi þegar fréttamenn nota íslenskar tímasetningar um erlenda viðburði. Gefur jafnvel til kynna að forsetinn hafi rofið dagskrá sjónvarps að næturþeli. Vitaskuld átti að segja að forsetinn hafi kunngjört áætlun sína "í gær" þótt flestir Íslendingar hafi þá fyrir löngu verið búnir að slökkva á sjónvarpinu og sofnaðir.  – Réttmæt ábending. Molaskrifari þakkar bréfið.

 

Halldór Högurður skrifaði (23.11.2014): ,,Sæll vertu. Ég veit ekki hvaða "brydd" þetta er en fannst skrítið að sjá hlekk á facebook með textanum "Íslensk hjón skelltu sér með núll fyrirvara til London til að brydda upp á tilveruna."

Að brydda upp á nýjungum kannast ég við en bryddar maður upp á tilveruna? Nema maður sé kannski löngu skráður látinn og nái undraverðum bata?” – Molaskrifari kannast ekki við þetta heldur. Þakka fyrir bréfið.

 

 

Molaskrifari upplifir það ævinlega sem þvingun af hálfu Ríkissjónvarpsins þegar hann er neyddur til að horfa á eða hafa opið fyrir íþróttafréttir , vilji hann horfa á veðrið. Hversvegna mega veðurfréttirnar ekki fylgja fréttum eins og þær hafa gert frá upphafi sjónvarps á íslandi. Hversvegna var þessu breytt?   Er það að neyða fólk til að horfa á íþrótttafréttir?

 

Í fréttum Stöðvar tvö á föstudagskvöld (21.11.2014) var okkur sagt að fyrir tveimur árum hefði Hanna Birna Kristjánsdóttir gjörsigrað prófkjör Sjálfstæðisflokksins. Prófkjörið bara steinlá! Hanna Birna sigraði ekki prófkjörið. Hún vann sigur í prófkjörinu. Í sama fréttatíma var mjög góð samantekt með dagsetningum um feril lekamálsins frá upphafi. Skýrari umfjöllun um málið en var í fréttum Ríkissjónvarps sama kvöld.

 

Það var ekki nákvæmt sem fram kom í fréttum Stöðvar tvö á laugardagskvöld (22.11.2014) að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefði lýst einróma stuðningi við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur. Það kom hvergi fram að stuðningurinn hefði verið einróma. Það geta menn séð ef skoðaðar eru fréttir um fundinn og ummæli formanns flokksins eftir fundinn. http://m.visir.is/forsida/Frett?ArticleID=2014141119616

 

Í þættinum Morgunútgáfan í Ríkisútvarpinu verður klukkan stundum ekki neitt. Heldur dettur klukkan í eitthvað (24.11.2014).  Klukkan er að detta í hálf níu! Hvað skyldi málfarsráðunautur segja um þetta?

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG

 

 


Molar um málfar og miðla 1620

Molavin skrifaði (22.11.2014) : ,,Í fyrirsögn á Netmogga (21.11.2014) segir m.a.: "Hef­ur grætt millj­ón­ir á nammisölu" Hér eru dæmigerð skrif frá fréttabarni. Þótt barnaorðið "nammí" hafi náð nokkurri útbreiðslu í talmáli, gert af ungbarnahjalinu "nammí-namm" er ástæðulaust að nota það í fréttaskrif í blaði, sem hefur alltaf viljað taka sig alvarlega, sem fréttablað amk. Sælgæti er hið hefðbundna orð.” – Satt og rétt. Þakka bréfið.

 

Á vef Ríkisútvarpsins (20.11.2014) segir: ,, Efling hefur sent ræstingarfyrirtækinu bréf þar sem bent er á að fjölmörg atriði sem tengjast kjörum og aðbúnaði sé verulega ábótavant.” Hér ætti að tala um að fjölmörgum atriðum væri ábótavant. Ekki að fjölmörg atriði sé ábótavant. Sjá: http://www.ruv.is/frett/keyra-kjorin-nidur-fyrir-botninn

Ætti ekki líka að tala um ræstingafyrirtæki, fremur en ræstingarfyrirtæki?

 

Í þessari frétt http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/11/20/mannlaus_trukkur_olli_miklu_tjoni/

á mbl.is (20.112014) segir frá því er mannlaus flutningabíll rann af stað og olli talsverðu tjóni. Í fréttinni segir meðal annars: ,, Flutn­inga­bif­reiðin rakst á bif­reiðar, ók niður bruna­h­ana og rakst á end­an­um á hús­næðið.” Molaskrifara finnst það undarlegt orðalag að bifreið segja að hafi rekist á húsnæði. Bifreiðin rakst á hús. Í fréttinni segir enn fremur: ,, Vöru­bíll­inn er tölu­vert tjónaður ...” Átt er við að vörubíllinn hafi skemmst talsvert.

 

Ný ambaga hefur skotið upp kollinum í vélrænum þýðingum fésbókar: Nú eru menn farnir að líka við athöfnið mitt!!

 

Íslensk getspá er komin á 2007 línuna í auglýsingum. Fyrirtækið auglýsir, að þeir, sem hljóti veglegan vinning, geti notað andvirði til að snatta innanbæjar á þyrlu. Ósköp er þetta nú eiginlega hallærislegt! https://mail.google.com/mail/u/0/?shva=1#inbox/149d2379c159057d

 

 

Molalesandi sendi eftirfarandi (21.11.2014):,, Ölgerð Egils Skallagrímssonar er með úrval af Kristal + drykkjum.
Þar af er einn með eftirfarandi bragði:
Bláberja- og limebragð.
Limebragð? Það er til íslenskt orð yfir frænku sítrónunnar. Það er límóna.” Þetta er hárrétt ábending. Molaskrifari þakkar bréfið.

 

Það er alltaf heldur hvimleitt að heyra spyril spyrja um eitthvað sem viðmælandinn er þegar búinn að segja. Ber með sér að sá sem spyr hefur ekki hlustað. Þetta mátti heyra undir lok Morgunútgáfunnar á föstudag (21.11.2014) er spurt var um útkomutíma geisladisks. Í sama þætti var talað um að ,,stækka vatnsmagnið” í Bláa lóninu”. Auka vatnsmagnið.

 

Orðbragð Ríkissjónvarpsins var skemmtilegt og fræðandi að venju í gærkveldi (23.11.2014), - ekki síst þar sem bent var á skiltavillurnar,sem eru ótrúlega víða og ótrúlega margar. – En hvaða máli skiptir það hvort fleiri orð eru karlkyns en kvenkyns? Það hefur nákvæmlega ekkert með jafnrétti kynjanna að gera. Það sem Guðrún Þórhallsdóttir málfræðingur sagði um þetta var mjög gott. Kjarni málsins.

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG

 


Molar um málfar og miðla 1619

  

Í Morgunútgáfu Ríkisútvarpsins eru of margar misfellur í málfari. Að morgni fimmtudags (20.11.2014) var talað um að versla jólagjafir á netinu og fara í mollin. Við kaupum jólagjafir og moll er hallærisleg enskusletta (shopping-mall). Íslendingar tala um að fara í Kringluna eða fara í Smáralindina. Svo var okkur sagt að klukkan væri alveg að detta í hálf átta. Hún hefur vonandi ekki skemmst í fallinu.

Molaskrifari veit ekki hvaða málfarskröfur eru gerðar til þeirra sem falið er að sjá um fasta þætti í Ríkisútvarpinu. Í þessum hætti hafa ekki verið gerðar strangar kröfur til allra, sem þar koma við sögu.

 

Grunnhugmyndin á bak við Rás tvö á sínum tíma var að geta boðið hlustendum ólíkt efni á tveimur útvarpsrásum. Nú er sama efnið flutt á báðum rásum Ríkisútvarpsins frá klukkan hálf sjö á morgnana til klukkan níu. Getum við ekki fengið þátt á aðra rásina þar sem er meiri tónlist, minna um innihaldslítið fjas og umfram allt minna um málblóm, færri ambögur?

 

Kosið verður um vinnumatið, var sagt í fréttum Ríkissjónvarps (19.11.2014). Skyldu margir listar verða í framboði? Það verða greidd atkvæði um vinnumatið, ekki kosið um það.

 

Gamall vinur og skólabróðir sem lengi hefur verið búsettur í útlöndum skrifaði (20.11.2014): ,,Sá þetta í bloggheimum:
 Guðrún Konný Pálmadóttir · Virkur í athugasemdum · Skóli Lífsins

Ömurð í einu orði sagt!
Hef ekki séð þetta áður. Hreint ágætt orð!” Molaskrifari tekur undir og bætir við að Guðrúnu Konnýju þekkir hann að góðu einu frá fornu fari. Ekki hissa þótt hún fáist við orðasmíð.

 

Af mbl.is (220.11.2014):,, Buster er­sex ára sprin­ger spaniel­hund­ur og starfsmaður lög­regl­unn­ar á Sel­fossi ...” Molaskrifari veit að það getur verið hundur í starfsmönnum og menn geta verið með hundshaus, en að hundar séu starfsmenn er nýtt fyrir honum. En sennilega hefur hann ekki hundsvit á þessu.

 

Í íþróttafréttum Ríkisútvarps (20.11.2014) var sagt um þjálfara að hann væri spenntur fyrir leiknum í kvöld. Að vera spenntur fyrir einhverju hefur í huga Molaskrifara alltaf þýtt að hafa mikinn áhuga á einhverju. Að vera spenntur fyrir einhverjum/einhverri gæti þýtt að vera svolítið skotinn. Þjálfarinn var samkvæmt málkennd Molaskrifara spenntur vegna leiksins í kvöld.

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG

 

 


Molar um málfar og miðla 1618

 

Molaskrifari er ekki sérstaklega viðbrigðinn. En honum verður oft hverft við, þegar hann hlustar á þægilega lesnar tilkynningar / auglýsingar á Rás eitt,meðan beðið er eftir fréttum,  en svo er hljóðstyrkurinn allt í einu aukinn og byrjað er að æpa á okkur undir yfirskini auglýsinga. Ríkisútvarpið ætti sem fyrst að láta af þessari hvimleiðu nýjung.

 

Í málfarsspjalli þættinum Sirrý á sunnudagsmorgni á Rás tvö (16.11.2014) var meðal annars vikið að málfari í auglýsingum. Rétt er það , sem þar kom fram, að margt mætti þar betur fara. Það er eins og of margar auglýsingastofur skorti metnað til að gera vel í þessum efnum. Auglýsingastofur semja auglýsingar þar sem tönnlast er á slettunni Tax-free, sem ekki er íslenska og er líka ósönn fullyrðing, því enginn sleppur við að borga skatt af því sem þarna er auglýst Verið er að veita afslátt, sem nemur ekki einu sinni upphæð virðisaukaskattsins eins og ranglega er gefið í skyn. Auglýsingastofur gætu tekið sig saman um að útrýma þessari slettu. Og öðrum slettum sem þær hafa innleitt eins og bröns. Gæti sem best heitið dögurður, eins og lagt hefur verið til.

 Ríkisútvarpið getur líka lagt fram sinn skerf í þessum efnum og fylgt reglunni, sem enn er í gildi um að auglýsingar skuli vetra á lýtalausri íslensku. Þeirri reglu er ekki fylgt. Auglýsingadeild Ríkisútvarpsins virðist taka við öllu sem að henni er rétt og birta allt sem borgað er fyrir. Þessu getur Ríkisútvarpið breytt, ef vilji er til staðar. Það er á valdi Ríkisútvarpsins að bæta málfar í auglýsingum í Ríkisútvarpinu.

 

Gaman var á þriðjudagskvöld (18.11.2014) að hlusta á dr. Kristján Eldjárn hefja lestur nýrrar kvöldsögu, Eiríks sögu rauða á Rás eitt. Lesin inn á band fyrir meira en hálfri öld. Margar gersemar eru í segulbandasafni Ríkisútvarpsins. Okkur ber skylda til að tryggja varðveislu þeirra. Margt mun nú liggja þar undir skemmdum. Þar er efni sem ekki má fara forgörðum.

 

Tók málið í eigin hendur, var sagt í fréttum Stöðvar tvö (19.11.2014).Ekki rangt. En sterkt er í íslensku að tala um að taka málin í sínar hendur. Láta til skarar skríða, hefja verkið.

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG

 


Molar um málfar og miðla 1617

 

Tvímælalaust hefur kvikmyndaval Ríkissjónvarpsins batnað undanfarna mánuði. Enn meiri framför hefur þó orðið í vali heimildamynda til sýninga þar á bæ. Fjölbreyttara efni, nýrri myndir, fréttaskýringaþættir öðru hverju og áhugaverðara efni þegar á heildina er litið, að ekki sé sagt svona heilt yfir eins og hver fjölmiðlungurinn étur upp eftir öðrum um þessar mundir ! Þetta er skoðun Molaskrifara, sem hættir kannski stundum til að gagnrýna of margt og vera spar á hrósið. En þetta geta flestir sennilega tekið undir.

 

Steini skrifaði (16.11.2014): "Þetta er ekki eitt­hvað sem við gerðum illa eða þeir gerðu vel, held­ur er þetta sam­bland af hvoru tveggja." (mbl.is 16. nóv, á degi íslenskrar tungu) -segir þjálfari landsliðs í fótbolta eftir leik við Tékka og er hvorki betri né verri í að tjá hugsun sín á mæltu máli en margir íþróttamenn sem teknir eru tali í fjölmiðlum...
...þegar viðmælendur láta svona speki út úr sér eiga blaðamenn að spyrja hvað verið sé að meina. - Molaskrifari þakkar bréfið.

 

Í Morgunútgáfu Ríkisútvarpsins (18.1l.2014) vitnaði umsjónarmaður í DV og talaði um þrenn símtöl. Á forsíðu DV þennan dag er fyrirsögn með stóru letri: Þrjú símtöl á lekadegi. Umsjónarmaður hefur ef til vill ætlað að leiðrétta DV, en þarna var ekki leiðréttingar þörf. Ekkert við fyrirsögn DV að athuga. Að tala um þrenn símtöl er út í hött og rangt. Gera verður kröfur til umsjónarmanna þátta í Ríkisútvarpinu að þeir hafi betra vald á móðurmálinu, en þetta dæmi sýnir. Því miður fljúga ambögurnar frá þessum þætti um ljósvakann á morgnana.

 

Af visir.is (17.11.2014): Gangandi vegfarandi í borginni Guadalajara í Mexíkó ofbauð framkoma ökumanna í borginni á dögunum. Hér ætti að standa: Gangandi vegfaranda ofbauð .... http://www.visir.is/ofbaud-framkoma-okumanna/article/2014141119021

 

Í útvarpsþætti á laugardagskvöld (15.11.2014) var talað um annasamt fólk. Það er ekki rétt notkun þess orðs. Átt var við fólki í önnum, fólk sem átti annríkt, önnum kafið fólk.  

 

Tískuorð spretta upp og hverfa svo , - oftast nær. Mjög er í tísku um þessar mundir að samsinna, jánka einhverju með því að segja algjörlega. Í Morgunútgáfu Ríkisútvarpsins notaði umsjónarmaður þetta orð tvisvar sinnum á sömu mínútunni. Í þættinum Sirrý á sunnudagsmorgni á Rás tvö (16.11.2014) var rætt um ofnotkun orðsins geðveikt, sem nú er í tísku sem slanguryrði um eitthvað sem er stórkostlegt eða mjög gott. Málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins samsinnti með því að segja: Algjörlega! ,,Geðveikt gaman” – er fyrirsögn í DV (18.-20.11.2014).

 

 Það var annars fróðlegt og skemmtilegt að hlýða á athugasemdir hlustenda um íslenskt mál í þessum þætti. Þar var minnst á margt sem nefnt hefur verið í Molum og gaman að finna lifandi áhuga fólks á tungunni, - sem Molaskrifari skynjar ærið oft, þegar honum eru þökkuð þessi skrif. Nánari verður vikið að þessu spjalli um tunguna í Molum síðar, - en Molaskrifari hrökk svolítið við þegar sagt var undir lokin að nú þyrfti að setja auglýsingapakka í loftið. Auglýsingapakkar og íþróttapakkar eru pakkar sem við getum alveg verið án. Þeir koma óþarflega oft við sögu í Ríkisútvarpinu.

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG

 

 


Molar um málfar og miðla 1616

 

Molavin skrifaði (17.11.2014): ,,Sumar ábendingar þarf að endurtaka einum of oft og virðist samt varla duga. Í kvöldfréttum Útvarps (17.11.2014) gerði fulltrúi Landhelgisgæslunnar með skýrum og góðum hætti grein fyrir ýmsum rekstrarmálum varðskipa - en talaði samt um "áhafnarmeðlimi" þeirra. Þessi samsetningur er óyrði, óværa í málinu þegar við eigum til svo sígilt orð sem "skipverji." “ Molaskrifari þakkar bréfið og  tekur undir það sem þar er sagt. Aldrei er góð vísa of oft kveðin.

 

Úr frétt á vef Ríkisútvarpsins (14.11.2014) um geimfar sem lenti á halastjörnu:,, Það situr í skugga klettar á halastjörnunni og því ljóst að það fær ekki sólarljós til að hlaða rafhlöðurnar’’. Eignarfall nafnorðsins klettur er kletts, ekki klettar! http://www.ruv.is/frett/rafhlodur-philae-klarast-liklega-i-dag

 

Í Fréttatímanum (14.-16.11.2014) segir:,, Konur á aldrinum 16-24 ára versluðu um 85% alls þess fatnaðar ....”. Enn einu sinni ruglað saman sögnunum að kaupa og versla. Hér hefði átt að segja að konurnar hefðu keypt um 85% alls þess fatnaðar ...

 

Stundum rekur mann í rogastans yfir spurningum fréttamanna. Í fréttum Ríkisútvarps (14.11.2014) var aðstoðarlögreglustjóri spurður um það hver væri stefna lögreglunnar í vændiskaupamálum!!!  Á viðtalinu öllu var  nokkur viðvaningsbragur.

 

Molaskrifari hefur alltaf gaman af að horfa á Útsvarið,- þótt mörgum þyki það staðnað. Þættirnir renna vel og lipurlega á skjánum. Það góða við svona þætti er að þeir gefa kost á þátttöku þeirra sem heima sitja, - og geta glímt við spurningarnar. Molaskrifari upplifir það oft að hann hefur ekki hugmynd um svör við spurningum, sem yngri þátttakendur fara létt með, en svo koma spurningar sem hann er aldeilis hissa á að þátttakendur skuli ekki svara samstundis !!! Þetta hefur líklega eitthvað með aldurinn að gera.

 

Úr frétt á mbl.is (15.11.2014): Kon­an er 23 ára og kem­ur frá Ítal­íu. Æ algengara er að sjá svona tekið til orða. Betra hefði verið: Konan er ítölsk, 23 ára. http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/11/15/fell_utbyrdist_og_slasadist_illa/

Sama dag var sagt í sama miðli: Í fyrra seld­ust 616 lítr­ar af jóla­bjór og hef­ur sal­an aldrei verið meiri. Sennilega hefur vantað þarna orðið þúsund. En þetta þarf kannski ekki að vera svo nákvæmt. Sólarhring seinna var þetta óleiðrétt á vef mbl.is.

Molalesandi benti á þetta á mbl.is (15.11.2014) : http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/11/15/fann_tviburasystir_sina_a_youtube/

Þarna segir: Fann tvíburasystir sína á youtube. Þetta var leiðrétt síðar.

Í fréttum Ríkisútvarps á sunnudag (16.11.2014) var talað  um konungsfjölskylduna í Mónakó. Er ekki Mónakó furstadæmi og þjóðhöfðinginn fursti? Sama dag var sagt: ,,Honum var haldið í sama fangaklefa og breski hjálparstarfsmaðurinn ......” Fljótfærnisvilla: Honum var haldið í sama fangaklefa og breska hjálparstarfsmanninum ...

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG

 

 


Molar um málfar og miðla 1615

 

Lesandi sem lætur sér annt um móðurmálið þakkar Molaskrifin og segir: ,,Þessi fyrirsögn var á forsíðu Morgunblaðsins á dögunum. http://www.mbl.is/sport/fotbolti/2014/11/05/hjalmar_tekur_eitt_ar_til_vidbotar/

Þetta skrípi, ,,að taka’’ allan fjandann (taka fund, taka göngutúr, taka sturtu) er margtuggið en kolrangt og fer einstaklega mikið í taugarnar á mér. Þó ekki jafn mikið og ,,actually’’ og ,,basically’’.
Hjálmar verður í eitt ár til viðbótar.
Mér þótti skrítið að sjá þetta á forsíðu dagblaðs. Til skammar, ef ég á að segja eins og er.
Ég hlakka til að fylgjast áfram með síðunni góðu.” Molaskrifari þakkar bréfið. Fyrirsögnin sem vitnað er til er af mbl.is (05.11.2014)

Þetta er orðið algengt orðalag: Úr Fréttablaðinu (13.11.2014) um hjón sem fengu vænan lottóvinning: ,,.... þegar í ljós kom að þau höfðu nú loks tekið stóra vinninginn”. Tekið stóra vinninginn? Hreppt stóra vinninginn.

 

Í hádegisfréttum Bylgjunnar (13.11.2014) var sagt að Bandaríkjamenn hefðu boðað til sérstaks neyðarfundar í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Eðlilegra hefði verið að segja, að Bandaríkin hefðu óskað eftir að boðaður yrði sérstakur neyðarfundur í öryggisráðinu. Bandaríkin boða ekki fundi í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna.

 

Áskell skrifaði (13.11.2014): ,,Vandfundinn er miðill sem gerir jafn litlar kröfur til blaðamanna sinna og visir.is - og er þó samkeppnin umtalsverð. Á visir.is er fjallað um mann nokkurn í New York sem lamdi konu. Vefmiðillinn segir orðrétt um þennan mann: "Pena er fæddur í Dóminíska lýðveldinu til þess að spila hafnabolta".
Það er nokkuð ljóst að blaðamaðurinn sem snaraði textanum var ekki fæddur á Íslandi til þess að starfa við fjölmiðla.” Molaskrifari þakkar bréfið. http://www.visir.is/article/2014141119450

 

Í Útsvari (14.11.2014) var sagt að haldin hefði verið keppni í sjómann. Hefði ekki verið eðlilegra að tala um keppni í sjómanni ?

 

Af pressan.is (16.11.2014) um ölvaða konu: Konan var látin renna af sér í fangageymslu. Það var og!

 

 

Mikill fjöldi sjúkrafluga á árinu, sagði í fyrirsögn á mbl.is (13.11.2014). betra og einfaldara hefði verið: Mörg sjúkraflug á árinu.

Sjá: http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/11/13/mikill_fjoldi_sjukrafluga_a_arinu/

 

Sífellt er verið að rugla saman orðunum húsi, húsnæði og heimili. Síðast í fréttum Ríkissjónvarps á fimmtudagskvöld (13.11.2014) Þar var talað um mann sem átti ekkert í heimili sínu. Hann átti ekkert í húsinu eða íbúðinni, sem hann bjó í.

 

Heilbrigðisráðherra sagði í fréttum Stöðvar tvö (13.11.2014) að hann tæki undir með Kristínu Ingólfsdóttir, háskólarektor. Það var og.

 

Það var auðvitað afburðasnjallt hjá Ríkissjónvarpinu að senda dagskrárgerðarmann til Færeyja sem hvorki talar færeysku né dönsku, - heldur bablar ensku við Færeyinga. Flandraþættir ,,Edduverðlaunahafans” frá Færeyjum eru sama marki brenndir og Kanadaþættirnir á sínum tíma.

 

Hafðu það reglulega kósí, auglýsti Strætó á degi íslenskrar tungu (16.11.2014).

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, - ESG

 

 


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband