Molar um málfar LXVII

  Ekki kunni ég  viđ ţađ  orđalag í rćđu   forseta Íslands  viđ  setningu Alţingis, er hann talađi um  „djúpstćđa gjá. "  Talađ er um   djúpa  gjá eđa   hyldýpisgjá , en   ađ tala um  djúpstćđa gjá      finnst  mér  vera uppskrúfađ bull.  Ţetta er  reyndar ekki í  fyrsta skipti, sem í ljós kemur ađ vandađ málfar er ekki sterkasta hliđ ţjóđhöfđingjans. 

Nýr ţingmađur, Ţór Saari ,  notar  orđiđ  „slímsetur"  í bloggfćrslu (15.05.06.) Orđiđ  slímseta  er  mér  vitanlega  ekki til. Í íslenskri orđabók er  hinsvegar orđiđ  slímusetur (kvk. flt.), ađ  sitja slímusetur  er ađ sitja lengur  sem  gestur en sćmilegt ţykir, lengur en orlofsnćturnar,  en ţćr  voru ţrjár ađ fornum siđ.Ef litiđ  er á máliđ međ ítrustu velvild ,ţá er  ţetta kannski bara innsláttarvilla.

Merkilegt er  í ljósi  frétta af  innbyrđis átökum og  bágri stöđu  sparisjóđsins Byrs  ađ í auglýsingum  skuli  enn  tönnlast á  ensku hugsuninni um „fjárhagslega heilsu". Ţađ kórónar svo  vitleysuna  ţegar poppsöngvarinn ţeirra  er látinn segja  í auglýsingu ( SAM bíó í Kringlunni ,15.05.09.) : „Ţetta er  fjárhagsleg heilsa  fyrir mér." Hvílík lágkúra !  


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eygló

Ágćti Eiđur, enn stelurđu af mér glćpnum. Ert reyndar vel ađ honum kominn :)

Eins og mér er hlýtt til "poppsöngvarans" góđ er hann međ öllu ónothćfur til ađ fara međ íslenskt mál opinberlega. Sennilega hefur "fyrir mér" samt veriđ texti sem honum hefur veriđ fćrđur (jafn hallćrislegur fyrir ţađ) 

Eygló, 17.5.2009 kl. 00:40

2 identicon

Kćri Eiđur, takk fyrir áhugavert blogg, um málfar og fleira. 

Mér datt í hug ađ benda á ranga notkun orđsins "vergangur" í fréttum útvarpsins 13. 5. kl 10,00. Ţar var sagt: "Fjöldi dýrahrćja liggur út á vergangi". Ţetta tengdist frásögn af flóđum í Brasilíu í lok fréttatímans. Raunar var orđiđ notađ ađ ég held tvisvar sinnum áđur í fréttatímanum, en ţá í réttri merkingu. Ég hlustađi aftur á fréttirnar áđan, til ađ ég vćri nú örugglega ađ fara rétt međ, fyrst ég fór ađ skrifa ţér ţessar línur:)  Ég er líka hjartanlega sammála ţér um uppskafiđ málfar forsetans. Ég tók líka eftir ađ viđ ţingsetninguna var nýr tónn í röddinni, Hann er kannski búinn ađ leggja til hliđar hástemmda 2007 tóninn, sem hćfđi útrásarvíkingum og fína fólkinu.

Hákon (IP-tala skráđ) 17.5.2009 kl. 08:29

3 identicon

Alveg rétt, Hákon. Ţarna var ruglađ saman orđunum víđavangi og vergangi. Ţetta er svona ámóta og í frétt á Vefvísi í dag ţar sem talađ var um ađ manni hefđi veriđ bjargađ af „slysni". Fjalla nánar um ţađ síđar.

Eiđur (IP-tala skráđ) 17.5.2009 kl. 22:27

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband