Tíu manns og tvö-þrjú börn

 Það er nú ekki mikil frétt ,að samkvæmt  myndum Vefmogga skuli  tíu manns og  tvö, þrjú börn standa fyrir  framan stjórnarráðshúsið við Lækjartorg og mótmæla. Af þessum tíu  sýnist mér að tveir séu fréttamenn. Þetta er einna  helst  frétt vegna þess  fámennur hópurinn er 
mbl.is Mótmæla Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú varst ekki á svæðinu, Eiður. Þarna taldi ég tvisvar: fyrst 55 manns, síðan hartnær 60 manns um hálftíma seinna.

Jón Valur Jensson, 21.11.2009 kl. 17:51

2 identicon

Ágæti Eiður. Þú stendur vaktina hvað íslenskuna varðar í fjölmiðlum og er það vel. Við blaðamenn höfum gott af því að fá aðhald í þessu sem öðru. Ég tek hins vegar eftir því að þú talar jafnan í bloggi þínu um vefmogga, ýmist með litlu eða stóru vaffi. Ég ætla að leyfa mér að gera athugasemdir við þetta orð, fjölmiðillinn sem um er rætt heitir mbl.is. Þó að ritstjórnir beggja miðla starfi undir sama þaki, og samþætting milli þeirra hefur aukist, þá er um tvo sjálfstæða fjölmiðla að ræða. Þér til ábendingar er svo gott sem allur texti í sjálfu Morgunblaðinu prófarkarlesinn, en hið sama gildir ekki um það sem skrifað er beint á mbl.is. Þar geta undir mikilli tímapressu okkar blaðamanna sloppið í gegn innsláttar- og málfarsvillur en reynt er að laga það eftir bestu getu hverju sinni. Góðar stundir.

Björn Jóhann (IP-tala skráð) 21.11.2009 kl. 18:00

3 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

Þakka þér athugasemdina,Björn Jóhann. Hún er réttmæt.Þetta er rétt með misræmið. Nú er rétt að fara í samræmingu. Ég mun  reyna að gæta mín í framtíðinni.

Jón Valur, ekki lýgur myndin sem mbl.is birti. Þó svo þarna hafi verið „hartnær 60 manns". er það sárafátt, miðað við bægslagang stjórnarandstöðunnar.

Eiður Svanberg Guðnason, 21.11.2009 kl. 18:07

4 Smámynd: Kama Sutra

"Sterka" andstaðan gegn Icesave laðar að heil 0.02% af þjóðinni á mótmæli!

Kama Sutra, 21.11.2009 kl. 23:12

5 Smámynd: Andspilling

Jón Valur er greinilega mjög upptekinn af því að telja gangandi vegfarendur til mótmælenda. En ég gekk þarna fram hjá og stoppaði til að sjá þennan sorglega sirkus og varð þannig hluti af talningu öfgaklerksins geri ég ráð fyrir. En til að tryggja mig langar mig að koma því skýrt til skila - og það með fallegum íslenskum viðtengingarhætti. Ég færi ef ég gæti eins langt í burtu frá þessum skríl og mögulegt er, en stundum ratar maður í ógöngur!

Andspilling, 22.11.2009 kl. 00:05

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Eiður, það er ótrúlegt hvernig þú skrifar: "Ekki lýgur myndin". Þú hlýtur að átta þig á því, að hún er bara mynd af því, sem valið var að mynda! Og ég spyr: Ertu nokkuð svo langt leiddur, að þú trúir þessum tveimur stillimyndum betur en því sem sást á skjánum í kvöld? Og berðu brigður á það, sem kollegar þínir á Rúvinu skrifuðu í sinni frétt af mótmælunum? Það er hér:

Um 50 mótmæltu við stjórnarráðið

"Um fimmtíu manns mótmæltu Icesave-skuldbindingunum fyrir utan stjórnarráðið í hádeginu í dag. Að ræðuhöldum loknum hyggst hópurinn arka að Alþingishúsinu. Þeir mótmælendur sem fréttastofa náði tali af höfðu orðið fyrir vonbrigðum með mætinguna og varð einhverjum á orði að allur kraftur væri úr þjóðinni í Icesave-málinu."

Ég stend við mína talningu.

Þessi "Andspilling" þorir ekki að skrifa undir nafni, en er að birta blekkingaráróður víðar í kvöld; ekki er neitt mark á slíkum takandi. Flestir mótmælendur stóðu á gangstéttinni fyrir neðan Stjórnarráðshúsið, enda töluðum við, sem þar ávörpuðu fundarmenn, frá bíl með hátalara sem var lagt þar. En þessi gangstétt er ekki fjölfarin leið almennings að ganga um og var það heldur ekki í dag.

Jón Valur Jensson, 22.11.2009 kl. 00:45

7 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Ég vísa á þetta blogg hér, þar sem birtar eru nokkrar myndir af mótmælunum frá ýmsum sjónarhornum.

Erfitt er út frá þessum myndum að ná tölunni 55 hvað þá tölunni "hartnær 60".

Axel Jóhann Hallgrímsson, 22.11.2009 kl. 08:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband