Nú reynir á .....

 Nú reynir á hvort  stjórnarstaðan hefur snefil af ábyrgðartilfinningu, eða er bara í sýndar- og hræsnileik. Nú kemur í ljós hvort lýðskrumið eða ábyrgðin verða ofan á.  Fróðlegt verður að sjá. Ekki verður sagt meira að sinni.
mbl.is Icesave-fyrirvörum breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Stjórnarandstaðan er ekki aðalatriðið. Hvað vill þjóðin? Það er bara ekki hægt að samþykkja þetta!

"Íslensk stjórnvöld hafa fallist á að ekki verði hætt að greiða af Icesave-skuldabréfunum árið 2024 eins og fyrirvararnir gerðu ráð fyrir, heldur verði upphæðin greidd að fullu. "

Er ekki allt í lagi??? Það er ekki einu sinni fullreynt að við eigum að borga þetta helv....!

"Á hinn bóginn hefur niðurstaða dómsins, þótt hann yrði Íslendingum í hag, ekki sjálfkrafa þau áhrif að greiðslur falli niður."

Hverjir sátu eiginlega í þessari nefnd? Einhverjir sem þola ekki Ísland? Þetta má ekki samþykkja!!  Í guðanna bænum Samfylking! Það getur ekki verið svona gaman í Brussel að það sé öllu til fórnandi!?? Plísss......

Soffía (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 00:12

2 Smámynd: Baldur Hermannsson

Þetta er harkaleg niðurstaða. Lítið stendur þá eftir af þeim fyrirvörum sem Alþingi samþykkti í sumar. Það er einkennilega að orði komist að nú eigi stjórnarandstaðan að sýna ábyrgðartilfinningu - það er ekki hún sem ræður heldur vinstri flokkarnir.

Baldur Hermannsson, 18.10.2009 kl. 00:15

3 Smámynd: Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir

Stjórnarandstaðan er sá aðili sem hefur hingað til reynt að bjarga því sem bjargað verður af þessu mesta klúðri Íslandssögunnar næst á eftir bankahruninu. Mikil er óhamingja þessarar þjóðar að strax hafi verið bætt um betur og getuleysi, fáviska, gunguháttur og hindranir einkenni stjórnina sem treyst var til endurreisnar. SJS og Jóhönnu verða lengi minnst sem þeir sem mestu mistökin gerðu ásamt Geir Haarde. Hvernig í ósk0punum datt SJS í hug að skipa þessa menn í upphaflegu samninganefndina og skrifa undir plaggið án nokkurrar kunnáttu um raunverulegt innihald. SJS lýsti yfir pólitískri ábyrgð yfir samsetningu hennar, hvernig væri að hann axlaði hana nú með afsögn? Nú eru allir flokkar í skít upp að eyrum en stjórnarandstaðan hefur þó verið sá  aðiili sem hefur áttað sig og reynt að bjarga því sem bjargað verður. Þessi stjórn má ekki komast upp með að vanvirða þingið!

Adda Þorbjörg Sigurjónsdóttir, 18.10.2009 kl. 09:22

4 Smámynd: Sigurður Sigurðsson

Eiður Svanberg:  Hvað er lýðskrum og ábyrgð ?  Er það aumingjagangur krata og kommúnista í ríkisstjórn Íslands að samþykkja allar kröfur Breta og Hollendinga möglunarlaust ??  Meira að segja að fallast á það að halda áfram að borga ef dómur er Íslendingum í vil ? 

Er það þetta sem þú kallar ábyrgð og staðfestu ??

Ef svo er ættirðu að finna þér eitthvað annað að gera en ræða þessi mál hérna !!

Sigurður Sigurðsson, 18.10.2009 kl. 10:25

5 identicon

Í morgun bloggar Björn Bjarnason, að fráleitt sé að gera kröfu til þess að stjórnarandstaðan dragi ríkisstjórnina að landi í Icesave-málinu. Þetta kalla ég óskammfeilni í meira lagi hjá Birni. Reynt er að draga þjóðarskútuna á flot, eftir að henni var siglt í strand.

Og hverjir gerðu það, hverjir voru við stýrið? Þarf virkilega að minna fólk á það? Eða eru Íslendingar hálfvitar?

Haukur Kristinssonh (IP-tala skráð) 18.10.2009 kl. 11:00

6 Smámynd: Friðrik Hansen Guðmundsson

Það er eitthvað mjög mikið að ef trúnaðarmenn þjóðarinnar samþykkja að þjóðin losni ekki við Icesave ef dómar falla á þann veg að þjóðinni beri ekki skylda til að greiða Icesave.

Þeir trúnaðarmenn þjóðarinnar sem láta sér detta í hug að samþykkja slíkt ákvæði fyrir hönd þjóðarinnar eru að fremja pólitískt sjálfsmorð.

Að samþykkja að við borgum þó dómstólar dæmi að við eigum ekki að borga er þvílíkt rugl að ég trúi ekki að þetta sé í svona í þessum drögum. Þetta hlýtur að vera einhver misskilningur hjá Morgunblaðinu í þessari frétt af málinu.

Friðrik Hansen Guðmundsson, 18.10.2009 kl. 12:28

7 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Nú verður mönnum tíðrætt um dóma of dómsstóla og það sé þarna inní o.s.frv.

Þá vaknar spurningin:  Hvaða dómar ?  Hvaða dómstólar ?

Hvað eru menn að tala um eiginlega.

Ísland mun aldrei fara með þetta fyrir neina dómsstóla.  Eg get ekki séð það.  Til hvers ?  Til að fá að borga allt uppí topp ?

Hvaða tal er þetta !

Ómar Bjarki Kristjánsson, 18.10.2009 kl. 16:05

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Friðrik Már Baldursson, prófessor í hagfræði við Háskólann í Reykjavík, segir mikilvægt að menn átti sig á því að jafnvel þótt Seðlabankinn beiti sér ekkert á gjaldeyrismarkaði til að hemja gengi krónunnar þurfi þjóðarbúið að verða sér úti um stór erlend lán til að geta staðið við skuldbindingar sínar á næstu árum.

Auk þess þurfi að endurfjármagna lánin. Hann segir lán frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum vera hagstæðustu fjármögnun sem íslenska ríkinu stendur til boða. Of dýrar lántökur ríkisins myndu bitna hart á fyrirtækjum í landinu og þá einkum og sérílagi orkufyrirtækjunum.

Nú sé brýnast að menn átti sig á því hvaða lán séu hagstæðust í þessum tilgangi. Litháen hafi til að mynda brugðið á það ráð að gefa út skuldabréf á alþjóðlegum markaði. Litháar þurfi að greiða hátt verð fyrir þá lántöku eða um 8% í vexti. Ef þessi leið yrði farin hér á landi þyrfti Ísland að greiða hærri vexti, eða um 10%. Friðrik bendir á að vextir af lánum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum séu mun lægri, eða um 3%."

Hagstæðasta lánið frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum

Þorsteinn Briem, 18.10.2009 kl. 16:25

9 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

 Baldur, ég veit að þú hefur ekki gullfiskaminni.  Fyrst og  fremst eru það  Sjálfstæðisflokkur og  Framsóknarflokkur  sem hafa komið þjóðinni í þetta  klandur. Samfylkinging er svo sem  ekki alsaklaus heldur.  Bjarni Ben. og  Sigmundur munu halda lýðskruminu og  ábyrgðarleysinu áfram. Þúsund þeirra  eigin  flokksmanna er mismboðið með þessari framkomu, -  raunar þjóðinni allri.

Trúir nokkur sála  því í alvöru að Hollendingar og Bretar hefðu verið  eitthvað sveigjanlegri við Sigmund og Bjarna? Ekki til í dæminu.

Eiður Svanberg Guðnason, 18.10.2009 kl. 17:37

10 Smámynd: Þorsteinn Briem

„Hreinn kostnaður lántakanda mun þar af leiðandi eingöngu verða vaxtaálag sem greiða skal samtímis vaxtagreiðslum af pólsku ríkisskuldabréfunum. Vaxtaálagið verður 2% á ári fram til 31. desember 2015 en 1,3% á ári þar eftir.

Lánið verður endurgreitt með fjórum afborgunum á lokagjalddögum hinna tilgreindu pólsku ríkisskuldabréfa í október 2015, 2017 og 2019 og í september 2022. Pólsku ríkisskuldabréfin sem íslenska ríkið eignast samkvæmt lánssamningnum munu styðja við gjaldeyrisforða Íslands.“

Sameiginleg fréttatilkynning fjármálaráðuneyta Póllands og Íslands 4.10.2009

Þorsteinn Briem, 18.10.2009 kl. 18:36

11 Smámynd: Þorsteinn Briem

1.7.2009: „Lánin frá Norðurlöndunum, sem undirrituð voru í Stokkhólmi fyrr í dag, munu bera breytilega vexti sem taka mið af þriggja mánaða EURIBOR vöxtum að viðbættu 2,75 prósentu álagi. Lánin bera því nú 3,849% vexti, samkvæmt gögnum frá íslensku samninganefndinni.

Lánin eru veitt í evrum og hljóða upp á samtals 1,775 milljarða evra eða um 317 milljarða íslenskra króna.

Heildarlánstíminn er 12 ár. Fyrstu fimm árin eru afborgunarlaus og einungis greiddir vextir af lánunum árfjórðungslega. Að loknum fimm árum verður höfuðstóll lánanna endurgreiddur í jöfnum greiðslum, árfjórðungslega út lánstímann.

Fram kom í tilkynningu í morgun að lánsféð yrði ekki borgað út fyrr en eftir að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn væri búinn að samþykkja endurskoðaða efnahagsáætlun Íslands og AGS.



[Myndatexti:] Norðurlöndin ákváðu hinn 19. nóvember að veita Íslendingum lán í tengslum við efnahagsáætlun AGS.“

Tæplega 4% vextir á lánum frá Norðurlöndunum

Þorsteinn Briem, 18.10.2009 kl. 19:06

12 Smámynd: Þorsteinn Briem

Á eftir AGS hér fyrir ofan áttu reyndar að vera gæsalappir en ekki spurningarmerki. Eins gott að klikka ekki á því.

Gæsaglappa,
gerði skot,
þurs í þrot,
lappabrot,
hólmsins grjóta,
veggja ljóta,
krot,
nú tárin vot,
karli vísa á í kot,
eins og skot.

Þorsteinn Briem, 18.10.2009 kl. 19:35

13 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

Stjórnarandstaðan hefur ekki snefil af ábyrgðartilfinningu og ætlar að gera eins mikla  bölvun og hún getur. Sigmundur Davíð  sá reyndi stjórnmálamaður (!) er þegar byrjaður að hóta. Kannski fer hann til Noregs aftur  að tala  við Árna Johnsen  norskra stjórnmála.  Hvað í þessu máli hefðu þeir getað gert betur? Hefðu Bretar og Hollendingar veriið eitthvað sveigjanlegri við þá ?

Eiður Svanberg Guðnason, 18.10.2009 kl. 22:36

14 Smámynd: Baldur Hermannsson

Hvaða bölvun getur stjórnarandstaðan eiginlega gert? Ef stjórnin hefur meirihluta fyrir þessu er málið búið. Ef ekki - þá ber henni að segja af sér án tafar. Það var eggjahljóð í Ögmundi og ég þykist vita að meirihlutinn sé vís þótt varla sé hann stór.

Baldur Hermannsson, 18.10.2009 kl. 22:42

15 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

 Baldur, stjórnarandstaðan mun halda uppi endalausu málþófi eins og við urðum vitni  að í sumar, þegar  þingmenn  Sjálfstæðisflokks  voru í  sífelldum andsvörum við flokksbræður sína. Það gengur  þvert gegn  tiltangi þess að leyfa  andsvör í umræðum.  Andsvörin  voru mjög  til bóta, þegar reglur um þau komu inn í þingskapalög. Það var fyrst og fremst fyrir tilstilli Ólafs G. Einarssonar þingforseta. En það er hægt að eyðileggja alla góða  hluti  ef einbeittur  brotavilji er til staðar,eins og  nú virðist vera.  Þingmenn  Sjálfstæðisflokks  og Framsóknarflokks   reyndu markvisst að  eyðileggja  andsvarareglur þingskapalaga í sumar. Ég óttast að það sama muni gerast í næstu viku.  Sigmundur Davíð er þegar byrjaður að hóta fyrir hönd Framsóknar. Það  boðar ekki gott.

Eiður Svanberg Guðnason, 18.10.2009 kl. 23:07

16 Smámynd: Baldur Hermannsson

Það er rétt hjá þér. Alþingi verður að setja sér ótvíræðar starfsreglur sem koma í veg fyrir málþóf. Eða enn betra: reglur sem koma í veg fyrir að stjórnarandstaða geti hindrað framgang mála með málþófi.

Baldur Hermannsson, 18.10.2009 kl. 23:10

17 Smámynd: Eiður Svanberg Guðnason

Þá erum við sammála, Baldur. Báðir íhaldsmenn en ekki í sama flokki!

Eiður Svanberg Guðnason, 18.10.2009 kl. 23:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband